Við erum þorpið: Hegðun og líðan unga fólksins
Fræðslukvöld fyrir foreldra, forsjáraðila og öll áhugasöm
Fræðslukvöld með sálfræðingum Hafnarfjarðarbæjar fyrir foreldra og forsjáraðila barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri um hegðun og líðan. Markmiðið er að þátttakendur gangi út með hagnýt ráð og hjálpleg viðbrögð í uppeldinu. Leitast verður við að svara spurningum eins og:
- Hvað er hegðun?
- Hvað er hægt að gera þegar barn sýnir krefjandi hegðun?
- Hvað er kvíði?
- Hver eru hjálpleg viðbrögð við kvíða barna?
- Hvert get ég leitað eftir aðstoð?
Bára Fanney Hálfdanardóttir, Bergþóra Ragnarsdóttir og Svandís Gunnarsdóttir halda utan um kvöldstundina. Þær starfa allar sem sálfræðingar hjá mennta- og lýðheilsusviði Hafnarfjarðarbæjar þar sem þær sinna greiningum og ráðgjöf til foreldra og skóla.
Together, we are the village – join us!
————————————–
This meeting is part of a series of meetings by the City of Hafnarfjörður and the Healthy City of Hafnarfjörður on the issues concerning children and young people, their well-being and safety.