Stærðin skiptir ekki máli
Markaðsstofa Hafnarfjarðar stendur fyrir markaðsráðstefnunni Stærðin skiptir ekki máli með valinkunnum og reynslumiklum fyrirlesurum hver á sínu sviði í Bæjarbíói þann 13. nóvember.
Markmiðið er að sýna fram á að öll fyrirtæki geti náð árangri í marakaðsstarfi óháð stærð og efnahagslegum styrk. Miðaverð er 19.900 krónur.
Á ráðstefnunni lærir þú hvernig á að:
- Hámarka markaðsfé með því að einblína á áhrifamiklar, hagkvæmar leiðir.
- Nýta kraftinn í stafrænni tækni til að ná til markhópsins á árangursríkari hátt.
- Byggja upp sterk viðskiptatengsl sem stuðla að tryggð og betri tengslum við viðskiptavini.
- Nýta gervigreind í markaðsaðgerðum og efnissköpun til að ná hámarks árangri
Skiptir stærðin máli fyrir árangur í markaðsstarfi?
Í því mikla samkeppnisumhverfi sem við búum við í dag, þar sem snertifletir við viðskiptavini verða æ fleiri, velta margir fyrir sér hvort stærð fyrirtækja skipti máli þegar kemur að því að ná árangri í markaðsstarfi og í samkeppni á markaði.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að því að stærra er ekki endilega alltaf betra og sýnt verður fram á að öll fyrirtæki geta náð árangri í markaðsstarfi með réttum markaðsaðgerðum.
Lítil og meðalstór fyrirtæki hafa ákveðna kosti sem stærri fyrirtækjumskortir oft eins og: Sveigjanleika, hæfileika til að bregðast fljótt við breyttum aðstæðum á markaði og náin tengsl við viðskiptavini.
Með því að nýta þessa styrkleika er hægt að byggja upp öflugar markaðsherferðir sem skila árangri í öllum fyrirtækjum, óháð stærð, eða efnahagslegum styrk.
Reynslumiklir fyrirlestarar segja sínar sögur og gefa gestum hugmyndir, tæki og tól til að ná enn meiri árangri í sínu markaðsstarfi.
Agenda:
- 11:30 – Húsið opnar
- 12:00 – Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar og fundarstjóri
- 12:10 – Andri Már Kristinsson – Stafræn markaðssetning og áhrif stafvæðingar
- 12:50 – Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir – Vertu flamingóinn á tjörninni
- 13:30 – Gréta María Grétarsdóttir – Nýtt afl á markaði
- 14:10 – Hlé með veitingum frá Gulla Arnari
- 14:35 – Sigurður Már Sigurðsson – Gervigreind í markaðssetningu
- 15:20 – Gerður Arinbjarnardóttir – Skiptir stærðin raunverulega máli?
- 16:00 – 17:30 – Gleðistund (Happy hour) fyrir gesti til að tengjast og miðla reynslu.
Miðasala er á www.tix.is