Folk Museum's Tidbits
Cultural Notes from the Hafnarfjörður Folk Museum – April. The final Cultural Notes evening of the winter will be held at the Bookless Bungalow, 32 Vesturgata, Hafnarfjörður, on Wednesday evening, 29th April.
Byggðasafn Hafnarfjarðar opnar sýninguna Köldu ljósin föstudaginn 13. desember kl. 17. Öllum er boðið að vera viðstödd. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri mun opna sýninguna með stuttu ávarpi en opnunin er haldin í undirgöngunum við Hörðuvelli.
Opnunin er í tilefni af 120 ára afmæli fyrstu almenningsrafveitunnar á Íslandi. Árið 1904 sigldi Jóhannes Reykdal til Noregs og keypti þar 9 kw. rafal til að rafvæða tréverksmiðjuna sína og í framhaldi af því fékk hann færa menn með sér í að leggja rafmagn í nokkur hús í bænum. Margir furðuðu sig á þessum ljósbera í kaldri glerkúlu og voru þau stundum kölluð köldu ljósin.
Gott er að leggja bílum við Hörðuvallaleikskóla og ganga þeim megin að undirgöngunum.