Lunchtime Concert – Alda Ingibergsdóttir
On Tuesday, 3rd March at 12 noon, we invite you to the next lunchtime concert at Hafnarborg, where soprano Alda Ingibergsdóttir will be a guest of Antonía Hevesi,…
Sunnudaginn 22. júní kl. 13 will Sigrún Inga Hrólfsdóttir, sýningarstjóri, leiða gesti um sýninguna Óð til lita, sem stendur yfir í Hafnarborg í sumar, þar sem sýnd eru síðari verk Sveins Björnssonar sem unnin eru af mikilli innlifun og litagleði. Þá er sýningin sett upp í tilefni af því að listamaðurinn hefði fagnað 100 ára afmæli í ár, hefði honum enst aldur.
Sveinn Björnsson (1925-1997) var afkastamikill myndlistarmaður sem var lengst af búsettur í Hafnarfirði. Sveinn vann einkum með málverk en gerði einnig teikningar, klippimyndir og keramikverk. Verkin á sýningunni eru öll frá síðasta tímabili hans þegar hann helgaði sig alfarið abstrakt olíumálverki, þar sem liturinn varð honum bæði yrkisefni og innblástur.
Hér birtist samspil tærra og sterka lita í þróttmiklum strokum, þar sem litir blandast hver öðrum og mynda nýja tóna. Þá hafði Sveinn sterka tengingu við náttúruna og vinnustofa hans í Krýsuvík varð honum helgistaður, þar sem litir lands og himins urðu að uppsprettu og innblæstri. Sveinn var menntaður við Konunglegu akademíuna í Kaupmannahöfn og verk hans hafa verið sýnd víða, meðal annars hérlendis og í Danmörku. Þá prýða verk hans opinberar byggingar, þar á meðal stórt mósaíkverk í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði.
Free admission – all are welcome.