Hafnarfjörður Swimming Club celebrated its eightieth anniversary.
Mannmargt var á 80. ára afmæli Sundfélags Hafnarfjarðar. Tugir félagsmanna fengu heiðursmerki þess. Fjöldi sótti einnig sýningu sem stendur fram yfir næstu helgi.
Sögunni lyft á 80. ára afmælinu
Tugir voru heiðraðir á 80. ára afmælishátíð Sundfélags Hafnarfjarðar sem haldin var degi fyrir afmælisdaginn sem er 19. júní. Allt voru þetta einstaklingar sem fengu viðurkenninguna fyrir framlag sitt til félagsins. Þau bera nú gull og silfurmerki í barmi.
Ekki aðeins stóð anddyri Ásvallarlaugar fullt á þessum afmælisfögnuði heldur skoðaði fjöldi einnig frábæra sýningu félagsins í sal á efri hæðinni. Sýningin er opin fram yfir næstu helgi. Þar má sjá bikara, myndir og annan varning úr langri sögu félagsins.
„Það eru ekki margir viðburðir sem gleðja mann jafn mikið og þegar við fáum að fagna góðu fólki sem hefur skilað ómetanlegu starfi í þágu samfélagsins og í dag er einmitt slíkur dagur,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri við tilefnið. Sundfélagið hefði verið burðarás í íþróttalífi bæjarins og traustur og öflugur samstarfsaðili bæjarins.
„Samvinna við uppbyggingu þessarar laugar hér hefur verið til fyrirmyndar, og enn þann dag í dag, 17 árum eftir opnun, er hún að mati margra besta keppnislaug landsins og aðstaðan fyrir félagið og almenning alveg til fyrirmyndar.
Við vinnum nú saman að því að þróa útisvæðið við laugina þannig að það nýtist bæði almenningi og iðkendum SH því við viljum að það sé áfram skýrt í verki að sundfólkið okkar eigi hér sitt annað heimili.
Árangur Sundfélagsins talar sínu máli. SH hefur á síðustu áratugum verið eitt sigursælasta félag landsins. Það hefur unnið nánast öll verðlaun sem í boði eru á Íslandi – og svo er það þessi einstaka staðreynd: SH hefur átt keppanda á átta síðustu Ólympíuleikum. Það segir allt sem segja þarf,“ sagði hann.
Sérstakar viðurkenningar |
||
| Davíð Jónatansson | Silfur | Sundmaður – þjálfari – starfsmaður |
| Brons viðurkenningar | ||
| Aðalsteinn Hrafnkelsson | Brons | Forstöðumaður sundstaða í Hafnarfirði og gott samstarf við félagið. |
| Bergþór Jóhannson | Brons | Eldri sundmaður, garpur og öflugur stuðningaðili við félagið (TRI / Hagtak) |
| Elín Ósk Sigurðardóttir | Brons | fyrir störf í foreldrafélagi SH og farastjórn á vegum félagsins |
| Guðmundur Stefán Björnsson | Brons | fyrir störf í foreldrafélagi SH, dómarastörf og tæknistjórn á mótum. |
| Guðrún Magnea Gunnarsdóttir | Brons | fyrir störf í foreldrafélagi SH og farastjórn á vegum félagsins |
| Helena Dögg Olgeirsdóttir | Brons | fyrir störf í foreldrafélagi SH og farastjórn á vegum félagsins |
| Hildur Dröfn Þórðardóttir | Brons | fyrir störf í foreldrafélagi SH og farastjórn á vegum félagsins |
| Ólafur Hálfdánarson | Brons | fyrir störf í foreldrafélagi SH og farastjórn á vegum félagsins |
| Sigþór Marteinsson | Brons | yfirkokkur félagsins og sjá um að sundmenn og aðrir fái vel að borða á mótum |
| Sólveig Hlín Sigurðardóttir | Brons | fyrrum sundmaður og þjálfari og fyrir störf í foreldrastarfi |
| Sveinn Sigurbergsson | Brons | fyrir mikinn stuðning við félagið. |
| Unnur Elfa Guðmundsdóttir | Brons | fyrir að vera yfir riðlastjóri og mikill brunch meistari |
| Andrea Helga Sigurðardóttir | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Bjarney Ó. Gunnarsdóttir | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Bragi Þorsteinsson | Brons | fyrrum sundmaður og stjórnarsetu |
| Einar Þór Sigurjónsson | Brons | fyrir stjórnarsetu, tæknimál á sundmótum og önnur störf í þágu félagsins |
| Fríða Kristín Jóhannesdóttir | Brons | fyrrum sundmaður og fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Gylfi Örn Gylfason | Brons | fyrir stjórnarsetu og störf í 3SH |
| Hálfdán Þorsteinsson | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Jón Viðar Magnússon | Brons | fyrir stjórnarsetu, dómarastörf og önnur störf í þágu félagsins |
| Pálmey Magnúsdóttir | Brons | Fyrir foreldrastarf, stjórnarsetu og allt annað sem hún gerir, allt múlíman (getum ekki án hennar verið) |
| Ragna Lilja Garðarsdóttir | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Sólrún Gunnarsdóttir | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Svanhildur „Asta“ Kristjánsdóttir | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
| Valgerður Jóna Guðjónsdóttir | Brons | fyrir stjórnarsetu og önnur störf í þágu félagsins |
Silfur viðurkenningar |
||
| Aðalbjörg Óladóttir | Silfur | fyrir stjórnarsetu, ÍBH stjórn, riðlastjórn, þulur og önnur störf fyrir félagið |
| Erla Björg Garðarsdóttir | Silfur | fyrir stjórnarsetu, önnur störf í þágu félagsins og stuðningur við félagið |
| Harpa Þrastardóttir | Silfur | fyrrum sundmaður, þjálfari og stuðningur við félagið með því að beina ungum börnum til félagsins |
| Kristín Garðarsdóttir | Silfur | fyrir stjórnarsetu, önnur störf í þágu félagsins og stuðningur við félagið |
| Mladen Tepavcecvic | Silfur | fyrrum sundmaður, þjálfari og stuðningur við félagið. |
| Stefán Kristófersson | Silfur | fyrir stjórnarsetu og yfirdómarastarf fyrir félagið. |
| Tómas Gisli Guðjónsson | Silfur | fyrir stjórnarsetu og yfirdómarastarf og önnur störf fyrir félagið |
| Aron Örn Stefánsson | Silfur | fyrrum sundmaður og keppandi á Heimsmeistaramóti |
| Dadó Fenrir Jasminuson | Silfur | fyrrum sundmaður, keppandi á Heimsmeistaramóti og þjálfari félagsins |
| Ingibjörg Kristín Jónsdóttir | Silfur | HM fara; tillaga 2015 og kemst ekki að sækja |
| Björn Sigurðsson | Silfur | Fyrir stjórnarsetu í SSÍ fyrir hönd félagsins og önnur störf í þágu félagsins |
| Gísli Johnsen | Silfur | fyrrum sundforeldri og skoðunarmaður reikninga í fjölda ára |
| Kristján Guðnason | Silfur | fyrrum sundmaður og stuðningur við félagið |
| Ragnheiður Birna Björnsdóttir | Silfur | Yfirdómari og sér um dómaramál félagsins í nokkur ár. |
Gull viðurkenningar |
||
| Erlingur Kristensson | Gull | fyrir skráningu og utanumhald á sögu félagsins. |
| Kári Kaaber | Gull | Sund-Garpur, yfirdómari og störf að dómaramálum |
| Kristinn Magnússon | Gull | fyrrum sundmaður, garpur, og fyrir mikinn stuðning við félagið. |
| Sigurður Óli Guðmundsson | Gull | Yfirdómari og utanumhald á dómaramálum félagsins í mörg ár |
| Bergur Helgason | Gull | formaður 1986-89 |
| Magnús B. Magnússon | Gull | Formaður 1982 – 1986 |
| Karl Georg Klein | Gull | Formaður 2014 – |
| Anton Sveinn McKee | Gull | Ólympíufari tokyo 2020 og París 2024, og glæstur sundferill…… |
| Arnþór Ragnarsson | Gull | Ólympíufari 1988 Seoul – fyrrum þjálfari SH |
| Hjalti Guðmundsson | Gull | Ólympíufari Sydney 2000, fyrrum þjálfari SH |
| Hrafnhildur Lúthersdóttir | Gull | Ólympíufari London 2012 og Ríó 2016 og glæsilegur sundferill…… |
| Kolbrúna Alda Stefánsdóttir | Gull | Paralympic London 2012 |
| Lára Hrund Bjargardóttir | Gull | Ólympíufari Sydney 2000 og Athena 2004 |
| Lilja María Snorradóttir | Gull | Paralympic Barcelona 1992 með 5 verðlaun (4 brons og eitt silfur) |
| Ólafur Eiríksson | Gull | Paralympic Atlanta 1996 með tvö brons og eitt gull |
Félagið stofnað 1945
Eins og segir á vef Sundfélags Hafnarfjarðar var það stofnað 19. júní árið 1945. Stofnfundurinn var haldinn í Sjálfstæðishúsinu. Hann var fjölsóttur og mikill áhugi meðal fundarmanna. Guðjón Sigurjónsson, íþróttakennari, var fyrsti þjálfari félagsins. Það starfaði með miklum blóma til ársins 1947, en þá dofnaði yfir starfsemi þess þar til það komst aftur á skrið þegar Sundhöll Hafnarfjarðar var opnuð þann 13. júní 1953.
- Sigrún Sigurðardóttir, setti fyrst félagsmanna Íslandsmet í 400 og 500 m bringusundi árið 1959, þá 15 ára gömul.
- Fyrstur karla til að setja Íslandsmet var Árni Þór Kristjánsson í 500 m bringusundi árið 1961.
- Vilborg Sverrisdóttir, margfaldur Íslandsmeistari varð fyrst félaga í SH til að keppa á Ólympíuleikum, en hún tók þátt í leikunum í Montreal árið 1976.
Valdimar óskaði SH að endingu til hamingju með þessum orðum: „Við óskum SH innilega til hamingju með 80 ára afmælið og þökkum fyrir alla þá vinnu, árangur og gleði sem félagið hefur fært bænum okkar í átta áratugi. Við hlökkum til að vinna áfram saman, styðja við starfsemina og sjá enn fleiri börn og ungmenni blómstra í sundinu.“
Hafnarfjarðarbær óskar sundfélaginu innilega til hamingju með 80 ára afmælið.