Lunchtime Concert – Alda Ingibergsdóttir
On Tuesday, 3rd March at 12 noon, we invite you to the next lunchtime concert at Hafnarborg, where soprano Alda Ingibergsdóttir will be a guest of Antonía Hevesi,…
Laugardaginn 30. ágúst kl. 14 bjóðum við ykkur velkomin á listamanna- og sýningarstjóraspjall með þeim Dörshu Hewitt, Gunnhildi Hauksdóttur and Veronicu Brovall, sem allar eiga verk á haustsýningu Hafnarborgar Algjörum skvísum. Þá munu þær leiða gesti um sýninguna, segja frá eigin listsköpun, tilurð og viðfangi verka sinna, auk þess að fjalla um hugmyndafræði sýningarinnar ásamt Jösu Baka, sem stýrir sýningunni í samstarfi við Petru Hjartardóttu. Vinsamlegast athugið að spjallið verður mestmegnis á ensku.
Sýningin býður gestum að kanna þemu sem tengjast mýkt, krafti og kvenlegri orku í samtímalist. Sýningin hverfist um ólíkar birtingarmyndir sætleikans, guðdómlegar og goðsagnakenndar kvenlegar erkitýpur og andahyggjuna sem lítur á (móður) náttúru sem síkvika veru. Þá eru þessar hugmyndir skoðaðar út frá því hvernig þær eiga við fólk, staði og hluti, einkum nú þegar segja má að kvenlegar erkitýpur séu að koma fram úr fylgsnum sínum og umbreyta skilningi okkar á sjálfsmynd og jafnvægi.
Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru Berglind Ágústsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir, Darsha Hewitt og Svava Skúladóttir, Dýrfinna Benita Basalan og Róska, Gunnhildur Hauksdóttir og Gunnþórunn Sveinsdóttir, Hildur Ása Henrýsdóttir og Kíkó Korriró, Hulda Vilhjálmsdóttir og Jóhannes S. Kjarval, Veronica Brovall og Sóley Eiríksdóttir. Sýningarstjórar eru Jasa Baka og Petra Hjartardóttir.
Free admission – all are welcome.