The year is 1952 – a celebration in honour of Hafnarfjörður's 70th anniversary.
Sú hefð hefur skapast síðustu ár að bæjarstjóri Hafnarfjarðar býður til veislu í Hásölum til heiðurs þeim Hafnfirðingum sem sjötugir hafa orðið og verða á árinu. Í ár var veislan haldin fimmtudaginn 3. nóvember og til veislunnar mættu rétt um 100 prúðbúnir og hressir Hafnfirðingar fæddir árið 1952. Hin síðustu ár hefur þjónusta bæjarins þróast markvisst í átt að aukinni fyrirbyggjandi og fjölbreyttri heilsueflandi þjónustu sem miðar að því að stuðla að vellíðan og heilsueflingu eldri borgara í Hafnarfirði.
Skemmtileg hefð til heiðurs 70 ára Hafnfirðingum
Sú hefð hefur skapast síðustu ár að bæjarstjóri Hafnarfjarðar býður til veislu í Hásölum til heiðurs þeim Hafnfirðingum sem sjötugir hafa orðið og verða á árinu. Í ár var veislan haldin fimmtudaginn 3. nóvember og til veislunnar mættu rétt um 100 prúðbúnir og hressir Hafnfirðingar fæddir árið 1952. Stórafmælis-veislurnar eru orðnar átta talsins frá því að ákvörðun um sameiginlega veislu til handa öllum sjötugum var tekin.
A diverse and proactive health promotion service
Hin síðustu ár hefur þjónusta bæjarins þróast markvisst í átt að aukinni fyrirbyggjandi og fjölbreyttri heilsueflandi þjónustu sem miðar að því að stuðla að vellíðan og heilsueflingu eldri borgara í Hafnarfirði þannig að þeir geti tekið virkan þátt í samfélaginu og búið í sjálfstæðri búsetu sem lengst. Í veislunni var fjölbreytt þjónusta bæjarins kynnt fyrir afmælisbörnunum auk þess sem hópurinn fékk kynningu á hressandi og skemmtilegu félagsstarfi hjá Félagi eldri borgara í Hafnarfirði. Bæjarstjóri, forseti bæjarstjórar, bæjarfulltrúar og starfsfólk bæjarins fagnaði áfanganum með hópnum sem mörg hver eru æskuvinir, uppeldisfélagar og/eða félagar úr fjölbreyttu félagsstarfi innan bæjarmarkanna. Hópurinn hlýddi á hljómfagra tóna undir stjórn Tónlistarskóla Hafnarfjarðar auk þess að fá kynningu á QiGong og hlýða á brot af því sem gerðist á fæðingarárinu 1952.
Þetta gerðist í Hafnarfirði, á Íslandi og víðar árið 1952
- Landhelgin færð út í 4 sjómílur en mikill ágangur hafði verið í veiði við Íslandsstrendur. Ásóknin var svo mikil að ýsuaflinn dóst saman um 32% og skarkolaaflinn um 47%
- Afspyrnuveður var þann 5. janúar 1952 og hvarf Hafnarfjarðartogarinn Faxi frá legunni. Fleiri bátar slitnuðu upp en hægt var að draga þá aftur að landi
- Sveinn Björnsson fyrsti forseti lýðveldisins lést. Hann sat í embætti frá 1944 – 1952 og Ásgeir Ásgeirsson tók við embætti forseta og sat til 1968
- Steingrímur Steinþórsson var forsætisráðherra
- Reglugerð um áfengissölu til lækninga hvað á um að áfengisbækur væru í lyfjabúðum og vandlega skráð öll meðferð áfengis. Lyfsölum bar að senda áfengisbækurnar í lok hvers árs til eftirlitsmanna til athugunar og varðveislu
- Gerpla eftir Halldór Laxness kom út þetta ár
- Nýársmynd í Bæjarbíó var Dansmærin. Bráðskemmtileg, skrautleg og fjörug söngva- og dansmynd í eðlilegum litum
- Allmikill mosaeldur kom upp í Heiðmörk og hefði hann getað valdið óbætanlegum skemmdum á ungum trjáplöntum og öðrum gróði en með snarræði var hann slökktur og komist varð hjá tjóni
- Verðlag: Þorskur slægður með haus var á kr. 1.05 kílóið. Ýsa slægð með haus var á kr. 1.15
- 919 meðlimir í NFLÍ búsettir í Hafnarfirði
- Samtals 65 verslanir voru í Hafnarfirði þetta árið: 1 heild- og umboðsverslun, 14 matvöru- og nýlenduvöruverslanir, 11 vefnaðarvöruverslanir, 1 skóverslun, 3 bóka- og ritfangaverslanir, 4 járn- og byggingavöruverslanir, 2 raftækja- og bifreiðavöruverslanir, 4 fiskverslanir, 8 brauð- og mjólkurbúðir, 10 sérverslanir, 7 verslanir með alls konar vörur og ótilgreint
- 2990 kjósendur á kjörskrá, 2699 atkvæði greidd í forsetakosningu árið 1952
- Sundhöll Hafnarfjarðar fokheld 1952
- Úr lesbók Morgunblaðsins: Hafnarfjörður er sjálfstæð borg, þótt þar sé ekki jafn margir íbúar og í sumum úthverfum Reykjavíkur
- Rafmagnstakmörkun algeng og tilkynnt í blöðum
- Ódýr blómasala í Hellisgerði alka daga
- Elisabet II varð drottning Bretlands, þá 27 ára gömul
- Söngleikurinn „Singing in the rain“ var frumsýndur í Bandaríkjunum. Gene Kelly leikur aðalhlutverkið.
- Vinsæl lög frá 1952 eru: – You Belong to Me – Jo Stafford, Here in My Heart – Al Martino, Heart and Soul – The Four Aces, A Guy is a Guy – Doris Day, Delicado – Percy Faith,
- Móðir Teresa opnar sjúkraskýli í Calcutta
- Ann Davisson siglir ein yfir Atlantshafið
- Fyrsta farþegaflug yfir Norðurpólinn er frá Los Angeles til Kaupmannahafnar
- Ungfrú Alheimur er haldin í fyrsta sinn og fröken Finnland vinnur. Engin keppni var haldin á Íslandi 1952
- Bandarískir vísindamenn leggja fram kenningu um Stóra Skell 1. Apríl 1952

