The Bright Days 2022 are about to begin.
Do you have an idea for the programme of Bright Days? The cultural festival begins on 20 April and runs until summer.
Framundan eru Bjartir dagar, menningarhátíð sem endurspeglar allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði og stofnanir, félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar standa að. Bjartir dagar hefjast, með fyrstu bæjarhátíð sumarsins, dagana 20.-24. apríl. Hátíðin hefur haldist í hendur við Sumardaginn fyrsta undanfarin ár en mun, líkt og síðustu tvö árin, standa yfir lengur og vera hattur fjölbreyttra menningarviðburða í sumar. Viðburða sem hvetja bæjarbúa til virkrar þátttöku og góðrar samveru.
Sumar tekur við af vetri á Björtum dögum
Hátíðin hefst síðasta vetrardag með sumarsöng nemenda, vali á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar, afhendingu menningarstyrkja og tónlistarhátíðinni HEIMA, einstakri tónlistarhátíð sem fer fram í heimahúsum í miðbæ Hafnarfjarðar. Á Sumardaginn fyrsta verður boðið uppá fuglaskoðun við Hvaleyrarvatn, víðavangshlaup í miðbæ Hafnarfjarðar og skátadagskrá á Thorsplani.
Viltu skrá viðburð til þátttöku?
Hafnarfjarðarbær heldur utan um almenna skipulagningu og samhæfingu viðburða, stendur að útgáfu dagskrár og kynnir hátíðina. Nú er um að gera að leggja höfuðið í bleyti og koma með hugmyndir að dagskrá og senda hugmyndir og upplýsingar um viðburði sem eru á döfinni á netfangið: menning@hafnarfjordur.is
Nokkur dæmi um skemmtilega dagskrárliði
- 3. bekkingar syngja inn sumarið á Thorsplani miðvikudaginn 20. apríl kl. 10.
- Leikskólalist. Leikskólabörn taka virkan þátt og skreyta fyrirtæki, verslanir og stofnanir og næsta nágrenni við leikskólana.
- Fuglaskoðun í Höfðaskógi. Lagt af stað frá Þöll Kaldárselsveg kl. 11 á Sumardaginn fyrsta
- The Road goes ever on. Hópur ungra listamanna flytur söngljóðaflokk úr Hringadróttinssögu Tolkiens í tónsetningu Donald Swann á Bókasafni Hafnarfjarðar á Sumardaginn fyrsta kl. 16
- Síðdegistónar í Hafnarborg föstudaginn 22. apríl kl. 18.
- Stóri plokkdagurinn. Hafnfirðingar hvattir til að taka til hendinni og hreinsa bæinn sinn.
- Söfn bæjarins verða opin. Pakkhús Byggðasafnsins, Bókasafn Hafnarfjarðar og Hafnarborg