Bjartir dagar 22.-26. apríl
Það verður mikið um dýrðir á menningarhátíð Hafnarfjarðar Björtum dögum sem haldnir verða dagana 22.-26. apríl.
Það verður mikið um dýrðir á menningarhátíð Hafnarfjarðar Björtum dögum sem haldnir verða dagana 22.-26. apríl. Á síðasta degi vetrar syngja fjórðu bekkingar inn hátíðina og sumarið, listamenn bjóða heim á Gakktu í bæinn og Heimahátíðin verður haldin í 13 heimahúsum í miðbænum.
Sumri verður fagnað með fjölskyldudagskrá á Sumardaginn fyrsta og á Björtum dögum koma fram fjölmargir listamenn auk þess sem félagsmiðstöðvar taka virkan þátt í hátíðinni. Þá munu leikskólarnir að venju skreyta bæinn með verkum sínum.
Hér er hægt að kynna sér dagskrána og svo minnum við á Facebókarsíðu viðburðarins Bjartir dagar.
Ef þú vilt frekari upplýsingar um Bjarta daga þá endilega hafðu samband við Marín Hrafnsdóttur menningar- og ferðamálafulltrúa á marin@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5776.