Bright days in Hafnarfjörður will continue throughout the summer.
Framundan eru Bjartir dagar, menningarhátíð sem endurspeglar allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði. Í venjulegu ári stendur þessi fyrsta bæjarhátíð landsins yfir í fimm daga en ákveðið hefur verið að hátíðin, sem hefst síðasta vetrardag með vali á bæjarlistamanni Hafnarfjarðar, afhendingu menningarstyrkja og sumarsöng nemenda, standi yfir í allt sumar og verði hattur fjölbreyttra hátíðarhalda. Þannig hefur fjármagn til frumkvæðisverkefna verið aukið og allir áhugasamir hvattir til að sækja um örstyrki til viðburða og skemmtunar á Björtum dögum sumarið 2021.
Framundan eru Bjartir dagar, menningarhátíð sem
endurspeglar allt það fjölbreytta menningarstarf sem á sér stað í Hafnarfirði.
Í venjulegu ári stendur þessi fyrsta bæjarhátíð landsins yfir í fimm daga en
ákveðið hefur verið að hátíðin, sem hefst síðasta vetrardag með vali á
bæjarlistamanni Hafnarfjarðar, afhendingu menningarstyrkja og sumarsöng
nemenda, standi yfir í allt sumar og verði hattur fjölbreyttra hátíðarhalda.
Þannig hefur fjármagn til frumkvæðisverkefna verið aukið og allir áhugasamir
hvattir til að sækja um örstyrki til viðburða og skemmtunar á Björtum dögum
sumarið 2021.
Upphafsdagskrá hátíðar í ár er nokkuð látlaus og með öðru
sniði í ljósi samkomutakmarkana en allir ættu þó að finna eitthvað við sitt
hæfi og verða nokkrir viðburðir í streymi svo fleiri geti notið. Að þessu sinni
er sérstök áhersla lögð á unglingamenningu til þess að hvetja ungt fólk til
virkrar þátttöku í menningarstarfi, virkja sköpunarkraft þeirra og veita þeim
tækifæri til að njóta lista og menningar. Allir gestir eru hvattir til að virða
fjöldatakmörk, tveggja metra nálægðarmörk, huga að einstaklingsbundnum
sóttvörnum og nota andlitsgrímur þegar við á. Gera má ráð fyrir að fastir liðir
á bæjarhátíðinni fari fram síðar í sumar þegar umhverfi og aðstæður
leyfa.
Hlekkur á dagskrá hátíðar – Bjartir
dagar 2021 | Viðburðir framundan | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)
Nokkur dæmi um skemmtilega dagskrárliði
- 3.
bekkingar í Hvaleyrarskóla syngja inn sumarið undir stjórn Guðrúnar Árný í
beinu streymi á Facebook síðu Hafnarfjarðarbæjar (miðvikudagur 21. apríl
kl. 10) - Listasmiðjur
í félagsmiðstöðvum unglinga. Félagsmiðstöðvarnar í Hafnarfirði bjóða upp á
fjölbreyttar og spennandi listasmiðjur fyrir unglinga í efstu bekkjum
grunnskólanna. - Leikskólalist.
Leikskólabörn taka virkan þátt og skreyta glugga og næsta
nágrenni leikskólanna að þessu sinni. - Vorsýning
á vinnustofu Soffíu Sæmundsdóttur, Fornubúðum 8. Soffía sýnir ný verk
unnin á undanförnum mánuðum. - Listasmáskólinn
á Brikk. Sýning á verkum nemenda Listasmáskólans í gluggum Brikk,
Norðurbakka 1. - Síðdegistónar
í Hafnarborg föstudaginn 23. apríl. Fram koma söngkonan landsfræga Andrea
Gylfadóttir og Sálgæslan. Hægt er að panta sér miða en tónleikarnir verða
líka í beinu streymi - Ljósmyndasýningin
„Vinir sem þú hefur ekki enn hitt“ í anddyri Ásvallalaugar. Sjónræn
frásögn um ungt fólk frá vinabæjunum Frederiksberg í Danmörku og
Hafnarfjörður. - Stóri
plokkdagurinn. Hafnfirðingar hvattir til að taka til hendinni og hreinsa
bæinn sinn. - Opið
hús hjá Brettafélagi Hafnarfjarðar Flatahrauni 14. Frítt inn í SKATE
parkið og hægt að fá lánaðan búnaði ef þarf. - Fuglaskoðun
í Höfðaskógi. Lagt af stað frá Þöll við Kaldárselsveg. - Söfn
bæjarins verða opin. Pakkhús Byggðasafnsins, Bókasafn Hafnarfjarðar og
Port city - Spunaspilasólarhringur
í ungmennahúsinu Hamrinum - Jónas Sig og hamingjan – streymisstund í Hafnarfjarðarkirkju