Bleikur dagur á starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar
Bleikur fatnaður, bleikar veitingar, bleikt skraut og bleikir fylgihlutir voru einkennandi á starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar; í leikskólum bæjarins og stofnunum. Nemendur og starfsfólk grunnskóla tóku forskot á bleiku sæluna fyrr í vikunni í ljósi þess að vetrarfrí stendur nú yfir í grunnskólunum.
Hafnarfjarðarbær baðaður í bleikum ljóma
Bleikur fatnaður, bleikar veitingar, bleikt skraut og bleikir fylgihlutir voru einkennandi á starfsstöðvum Hafnarfjarðarbæjar; í leikskólum bæjarins og stofnunum. Nemendur og starfsfólk grunnskóla tóku forskot á bleiku sæluna fyrr í vikunni í ljósi þess að vetrarfrí stendur nú yfir í grunnskólunum.
Með þessu árlega og fallega framtaki vill starfsfólk sveitarfélagsins leggja sitt að mörkum og styðja með sýnilegum og táknrænum hætti við Bleiku slaufuna, árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins, sem tileinkað er baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.
Við viljum vera til fyrir konurnar í lífi okkar!
Fleiri bleikar myndir frá Hafnarfjarðarbæ – skólum og stofnunum – er að finna á Facebook-síðu bæjarins