A book club for 16-25 year-olds is on offer for young people.
Segðu frá því sem pirraði þig eða fékk þig til að hlæja í nýjum bókaklúbbi Hreiðursins og bókasafnsins. Fyrsti fundur er næsta þriðjudag. Klúbburinn er fyrir 16-25 ára.
Hreiðraðu um þig með bók í Hreiðrinu
Hvaða sögupersóna fékk þig til að hlæja síðast? Hver pirraði þig? Hvað finnst þér? Þetta verða spurningarnar sem Hugrún Margrét biður um svör við í fyrsta bókaklúbbi bæjarins fyrir 16-25 ára. Klúbburinn kallast Síðan.
Hugrún stýrir bókaklúbbnum í Hreiðrinu í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn annan hvern þriðjudag klukkan 17.30. Sá fyrsti þriðjudaginn næsta, 10. mars. Svo það er ekki seinna vænna en að byrja að lesa!
Bókaklúbburinn er samstarf bókasafnsins okkar og ungmennahússins. „Oftast ganga bókaklúbbar út á að allir lesa sömu bókina og tala um hana, en í þessum eru tvö þemu í hverjum hittingi til að velja úr,“ segir Hugrún. „Það opnar á þessa persónulegu tengingu og að hver tali út frá eigin upplifun en festist ekki í hvað honum eigi að finnast út frá þekktri rýni á bækurnar. Þetta verður því persónulegra mat hvers og eins.“
Hugrún hlakkar til samræðnanna. „Við byrjum starfið í Hreiðrinu. Fyrstu þrír eða fjórir hittingar verða þar og svo færum við okkur í bóksafnið. Svo ætlum við að hafa þetta eins lýðræðislegt og hægt er, en viljum líka bjóða upp á vinnusmiðjur.“ Dagskráin hangir nú á auglýsingum í ungmennahúsum og framhaldsskólum.
Sérsniðið að hópnum
Hugrún Margrét lýsir því að henni hafi lengi langað að gera eitthvað fyrir þennan aldurshóp. „Mér finnst mikið í boði fyrir yngri krakka en ekki þennan aldur. Ég er sjálf ekki í bókaklúbbi, því ég les það sem ég vil lesa. En ég hef hins vegar gaman að því að pæla í hlutum og ræða. Svo fór ég á Landsfund Upplýsingar í fyrra. Þar var tansísk-sambískur fyrirlesari sem stýrir bókaklúbbi fyrir þau sem lesa ekki bækur. Þessi klúbbur er spinoff af því. Hann kafar ofan í bækur og segir frá en mig langaði að bækurnar kæmu frá þátttakendum.“
Hugrún Margrét bíður spennt eftir því að sjá hver koma. „Þetta verður áhugavert. Gaman að halda klúbbinn á þessum tveimur stöðum eftir því sem starfsemi klúbbsins og raddir hópsins segja. Við viljum að þetta sé gagnvirkur klúbbur eins og allt annað hér á bókasafninu.“
Velur hláturinn umfram pirringinn
Sjálf mætir Hugrún með Kokkál eftir Dóra DNA. „Ég hló upphátt,“ segir hún. En hvaða persóna pirraði hana síðast? „Ég blessunarlega gleymi bókum þar sem persónur pirra mig. Ætli það hafi ekki verið Bjartur í sumarhúsum. Hann var bara svo mikill vælukjói,“ segir hún og hlær.
- Hvenær: Annan hvorn þriðjudag kl. 17.30 í Hreiðrinu í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn
Dagsetningarnar fram í desember
