Börnin eiga sunnudaginn: Hátíð í Hellisgerði
Báðir álfar en þó ekki bræður, Íþróttaálfurinn og Benedikt búálfur, verða meðal þeirra sem verða á kreiki í Hellisgerði sunnudaginn 25. ágúst. Barnahátíð sem garðurinn umvefur.
Hellisgerði bíður þín þennan sunnudaginn!
Segja má að börnin eigi þennan sunnudag í Hellisgerði. Benedikt búálfur og Íþróttaálfurinn, andlitsmálun, dansarar frá Listdansskóla Hafnarfjarðar, sögustund bókaálfs Bókasafns Hafnarfjarðar, útileikir, sápukúlur og sykurpúðar lita fjölskylduhátíð sem haldin verður í Hellisgerði milli klukkan 14-16 í dag. Stundin okkar með börnunum og barnshjörtunum.
Hafnfirðingar og huldufólk fögnuðu í fyrra 100 ára afmæli Hellisgerðis og nú á 101 árs afmælinu mun andi liðinnar aldar, huldufólks og álfa verða allsráðandi í Hellisgerði sem fyrr. Já, þetta er hamingjustund með álfum og öðrum gleðigjöfum á Hátíð í Hellisgerði.
Svona lítur dagskrá sunnudagins út:
- 14:15 Sögustund bókaálfs Bókasafns Hafnarfjarðar við tjörnina
- 14 – 16 Sirkússmiðja með Sirkús Ananas
- 14 – 16 Andlitsmálning barnanna í Gróðurhúsinu
- 14:30 Benedikt búálfur
- 14:45 Kjalar
- 15:00 Mæja jarðaber
- 15:15 Íþróttaálfurinn
Já, njótum dagsins saman. Öll velkomin.