Covid19: Stórhertar aðgerðir taka gildi á miðnætti
Hertar reglur um sóttvarnarráðstafanir á landsvísu taka gildi á miðnætti í kvöld. Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin. Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað þar til páskafrí tekur við. Margvísleg starfsemi sem rúmast ekki innan reglu um 10 manna fjöldatakmörkun verður stöðvuð.
See the announcement on the website of the Cabinet Office.
Hertar reglur um sóttvarnaráðstafanir á landsvísu taka gildi á miðnætti í kvöld. Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin. Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað þar til páskafrí tekur við. Margvísleg starfsemi sem rúmast ekki innan reglu um 10 manna fjöldatakmörkun verður stöðvuð. Ákvörðun heilbrigðisráðherra um hertar sóttvarnaaðgerðir byggist á tillögum sóttvarnalæknis um að grípa tafarlaust til ráðstafana vegna hópsýkinga innanlands að undanförnu til að sporna gegn frekari útbreiðslu veirunnar. Hertar reglur munu gilda í 3 vikur.
Helstu reglur sem taka gildi á miðnætti:
Nándarregla verður áfram 2 metrar og reglur um grímuskyldu óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir. Börn í leikskólum eru undanþegin 2 metra reglunni og fjöldatakmörkunum.
- General mass restrictions 10 manns og ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr.
- Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum við athafnir. Þeir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri en þurfa ekki að sitja í númeruðum sætum. Gestum er skylt að nota andlitsgrímur og tryggja skal 2 metra regluna. Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er 10 manns.
- Sund- og baðstaðir lokaðir.
- Heilsu- og líkamsræktarstöðvar lokaðar.
- Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar.
- Sviðslistir og sambærileg starfsemi, svo sem bíó, er óheimil.
- Skemmtistaðir, krár, spilasalir og spilakassar lokaðir.
- Ökunám og flugnám með kennara óheimilt.
- Restaurants mega hafa opið til kl. 22, með að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru númeruð. Vínveitingar skal bera til sitjandi viðskiptavina. Heimilt er að taka á móti nýjum gestum til kl. 21.00.
- Shops mega taka á móti 5 einstaklingum á hverja 10 m2 að hámarki 50 manns. 20 starfsmenn mega vera í sama rými og viðskiptavinir. Tveggja metra nándarregla og grímuskylda.
- Starfsemi hársnyrtistofa, snyrtistofa og sambærileg starfsemi verður áfram heimil.
Skólahald
Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólum verður lokað frá og með morgundeginum og þar til hefðbundið páskafrí tekur við. Unnið verður að reglum um fyrirkomulag skólahalds að loknu páskafríi á næstu dögum.