Are you 18 or over and looking for a summer job?
Ertu í leit að sumarstarfi og langar að starfa í gefandi og líflegu starfsumhverfi? Hafnarfjarðarbær er með til auglýsingar fjölbreytt störf fyrir áhugasama sumarið 2022. Vakin er sérstök athygli á því að umsóknarfrestur í flest meðfylgjandi starfa rennur út mánaðarmótin mars/apríl.
Ertu í leit að sumarstarfi og langar að starfa í gefandi og líflegu starfsumhverfi
Hafnarfjarðarbær er með til auglýsingar fjölbreytt störf fyrir áhugasama sumarið 2022. Vakin er sérstök athygli á því að umsóknarfrestur í flest meðfylgjandi starfa rennur út mánaðarmótin mars/apríl.
Stökktu á möguleikana og tækifærin sem í boði eru hjá bænum þetta sumarið!
Yfirlit yfir öll laus störf hjá sveitarfélaginu
Á ráðningarvef Hafnarfjarðarbæjar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu sumarið 2022. Hafnarfjarðarbær er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með rétt um 2000 starfsmenn sem sinna fjölbreyttum störfum og verkefnum á um 70 ólíkum starfsstöðvum um allan bæ. Rík áhersla er lögð á það að hjá bænum starfi fólk sem getur veitt bestu þjónustu sem völ er á og sem sinnir sínu starfi af þekkingu, ábyrgð og metnaði. Sérstök athygli er vakin á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Þessi sumarstörf eru laus til umsóknar:
- Sumarstörf fyrir ungmenni fædd 2004 og eldri
- Flokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
- Skapandi sumarstörf – Hafnarfjarðarbær
- Starfsmaður í sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur
- Sumarstarfsfólk á heimili fyrir fatlað fólk – Svöluhraun
- Sumarstarfsmaður óskast til starfa – Lækur
- Sumarstarfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Lundur
- Atvinnutengt sumarúrræði fyrir ungt fólk með fötlun eða skerta starfsgetu á aldrinum 16 – 20 ára
- Sumarstarfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Berjahlíð
- Starfsmaður í sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk – Arnarhraun
- Sumarstarfsfólk á heimili fyrir fatlað fólk – Steinahlíð
- Starfsmaður í sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk – Erluás
- Spennandi sumarstarf í búsetukjarna – Öldugata
Sendu okkur umsókn!
Sumarstörf fyrir 14-17 ára
Sumarið 2021 fá 14 – 17 ára unglingar (fæddir árin 2005 – 2008) vinnu við Vinnuskóla Hafnarfjarðar. Vinnuskólinn sinnir fyrst og fremst umhverfismálum og á þannig stóran þátt í því að hreinsa bæinn og hirða gróður, götur og göngustíga yfir sumartímann. Starfsfólk Vinnuskólans sinnir því mikilvægu hlutverki í því að skapa vænta ásýnd bæjarins, að hann sé þrifalegur og snyrtilegur á að líta og ekki síst skemmtilegur fyrir íbúa og ferðamenn sem sækja bæinn heim í auknum mæli.
Opnað verður fyrir umsóknir 14-17 ára um mánaðarmótin apríl/maí.