FLUMBRA – Fjelag hafnfirskra höfunda mun standa fyrir bókakynningum og upplestri á Bókasafni Hafnarfjarðar þar sem gestir og gangandi geta notið ritsnilldar úr heimabyggð og spjallað við höfunda í notarlegu og heimilislegu andrúmslofti.

Viðburðurinn byrjar kl. 13:00 og stuttu síðar verður dagskrá dagsins kynnt. Næstu níutíu mínútur munu um 10 höfundar lesa og kynna sitt framlag en hver viðburður hefur sinn sérstaka fókus sem höfundar fjalla um að hverju sinni. Síðustu 20 mínúturnar fara í spjall og spurningar áheyrenda til höfunda.

Hér að neðan má sjá dagskrána fram að jólum, en allir eru velkomnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis.
_____________________________________________________

Sunnudagur, 25. október 2026
Friðrikssalur, kl. 13 – 15

Æska mín í Hafnarfirði

Fjelagsmenn flytja frumsamin ljóð og texta um æskuminningar sínar í Hafnarfirði. Hvernig var að alast upp í Hafnarfirði? Fjelagsmenn eru á aldrinum 20 til 80 ára og minningarnar því fjölbreyttar
____________________________________________________

Sunnudagur, 29. nóvember 2026
Önnustofa, kl. 13-15

Indiana Jones á aðventu

Fjelagsmenn flytja efni, ljóð og texta sem hafa vakið hjá þeim spennu og eftirvæntingu á aðventunni gegnum tíðina. Er jólasveinninn hættulegur? Borðar jólakötturinn börn? Hvenær koma jólin? Fæ ég kartöflu í skóinn?
Suggestion portal