Winter break in Hafnarfjörður – February 2026
There will be a half-term holiday in the primary schools and the Hafnarfjörður Music School on Thursday, 19th February and Friday, 20th February. Then, on Monday, 23rd February, there will be a joint…
HeilsuHulda mun leiða hvetjandi og heilsueflandi göngu um Hvaleyrarvatn og nágrenni. HeilsuHulda heitir fullu nafni Hulda Sólveig Jóhannsdóttir og er verkefnastjóri heilsueflandi vinnustaðar hjá Hafnarfjarðarbæ. Hafnarfjörður hefur verið heilsueflandi samfélag síðan 2015 og hóf þá vegferð að gerast heilsueflandi vinnustaður haustið 2022. Þar spilar Hulda lykilhlutverk sem hugmyndabanki og „hvetjari“ fyrir starfsfólk á öllum starfsstöðvum bæjarins. Hreyfing, vellíðan, jákvæðni og ánægja hefur keðjuverkandi áhrif á allt og alla. Mun HeilsuHulda í göngunni leggja áherslu á alla þessa þætti og nýta til þess umhverfið í kringum Hvaleyrarvatn sem er ævintýri líkast allt árið um kring.
HamingjuGanga er hluti af viðburðum Hafnarfjarðarbæjar í tilefni af Hamingjudögum í Hafnarfirði and Íþróttaviku Evrópu 2023. Heilsusamlegur lífsstíll og jákvætt viðhorf stuðlar að betri andlegri og líkamlegri líðan og eykur hamingju okkar.
Komdu í HamningjuGöngu! Komdu að njóta!