Winter break in Hafnarfjörður – February 2026
There will be a half-term holiday in the primary schools and the Hafnarfjörður Music School on Thursday, 19th February and Friday, 20th February. Then, on Monday, 23rd February, there will be a joint…
Nú er haustið að byrja að skarta sinni dásamlegu fegurð og við ætlum að taka þátt í því með tíðni og tónum. Það er yndisleg útislökunarstund framundan í faðmi náttúrunnar í notalegu og hlýlegu paradísinni Hellisgerði. Allir mæta með það sem til þarf til að slaka á úti í íslenskri náttúru í lok september. Gott er að hafa með sér hlýtt teppi til að vefja um sig, en þú getur verið hvort sem er sitjandi eða liggjandi til að taka við tíðni gongsins.
Gongin hafa þann eiginleika að hreyfa við orkunni okkar, en þitt er alltaf valið hvort þú setur þér ásetning um að vinna með eitthvað tiltekið viðfangsefni í þínu lífi eða mætir einfaldlega með opinn hug og ásetning um hamingju og vellíðan í hug og hjarta. Gongin vinna með þann farveg sem hver og einn velur sér fyrir stundina. Unnið verður með tvö títaníum gong, Bifröst 30″ og Deep Ocean 42″. Það er ekkert sem þarf að gera annað en að mæta og njóta! Áshildur Hlín, í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð, leiðir HamingjuGong í Hellisgerði.
HamingjuGong er hluti af viðburðum Hafnarfjarðarbæjar í tilefni af Hamingjudögum í Hafnarfirði and Íþróttaviku Evrópu 2023. Heilsusamlegur lífsstíll og jákvætt viðhorf stuðlar að betri andlegri og líkamlegri líðan og eykur hamingju okkar.
Komdu í HamningjuGong! Komdu að njóta!