HamingjuSjóbað við Langeyrarmalir
Miðvikudaginn 18. september kl. 17:30
Glaðari þú og rjúkandi fargufa
Tinna og Margrét hjá Glaðari þú – leikjanámskeið leiða HamingjuSjóbað við Langeyramalir í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð.
Sjóbaðið og samveran hefur þann eina góða tilgang að efla orku og vellíðan á náttúrulegan hátt með því að stíga út fyrir þægindarammann og auka þannig framleiðslu á gleðihormónum.
Sundhöll Hafnarfjarðar býður sjóböðurum að koma og nýta fataklefa og/eða laugina og heitu pottana að sjóbaði loknu þeim að endurgjaldslausu.