Opið hús í aðdraganda jóla
Jólageitungarnir verða með opið hús í aðdraganda jóla. Nánar tiltekið mánudaginn 2. desember frá kl. 14-18 að Suðurgötu 14 og er gengið inn í húsnæði Geitingunna frá Strandgötunni. Starfsfólk Geitunga hefur unnið að fallegu handverki í haust og býður vinum og vandamönnum. sem og gestum og gangandi að kíkja á handverkið, fá sér heitt kakó og mögulega versla nokkrar jólagjafir í leiðinni.
