Come and enjoy with us!  

Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað með hátíðlegri dagskrá á Thorsplani föstudaginn 14. nóvember þegar ljósin verða tendruð á Cuxhaven-jólatrénu. Sendiherra Þýskalands, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og formaður vinabæjarfélagsins Hafnarfjörður-Cuxhaven sjá um að tendra ljósin á trénu. Jólatréð er gjöf frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi til 37 ára. Það lýsir upp Jólaþorpið á nýjum stað í desember  

 

Café in Hellisgerði, Hjartasvell and funfair

Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði verður opið allar helgar frá og með 14. nóvember.

  • Föstudaga frá kl. 17-20
  • Laugardaga frá kl. 13-20
  • Sunnudaga frá kl. 13-18

Kaffihúsið í Hellisgerði verður opið á opnunartíma Jólaþorpsins og alltaf til kl. 20 þau kvöld. Sérstök athygli er vakin á því að Hjartasvellið og tívolí við Venusarhúsið Strandgötu 11 eru opin allar helgar fram að jólum.

————————————————————–

Föstudagur 14. nóvember

Kl. 17:00 Jólaþorpið opnar
Kl. 18:00 Lúðrasveit Hafnarfjarðar
Kl. 18:15 Karlakórinn Þrestir
Kl. 18:30 Tendrað á ljósunum á Cuxhaven jólatrénu
Kl. 18:40 Bestu jólalög barnanna – Árni Beinteinn og Sylvía

Laugardagur 15. nóvember

Kl. 12 – 16 Pólski dagurinn á Bókasafni Hafnarfjarðar!
Kl. 13 – 15 Á mínu máli – þæfingarsmiðja og pólsk mynstur in Hafnarborg
Kl. 15 – 16 Cotton candy on a stick at the Grýla Cave by the Museum's Packhouse
Kl. 16 – 17 Söguganga um Hafnarfjörð á pólsku, gengið frá Byggðasafni Hafnarfjarðar!

Sunnudagur 16. nóvember

Komið og prófið íshokki á Hjartasvellinu við Bæjarbíó í Hafnarfirði!
Hressir íshokkíkrakkar úr U10 flokki SR sýna listir sínar í léttum leik og svo eru allir velkomnir að prófa að grípa í kylfu, pökk og skauta, skjóta og skora.
Kl. 13:00-13:30 sýningarleikur U10 krakkar úr SR
Kl. 13:30-14:30 opinn ís, krakkar velkomnir að prófa með kylfu og pekki.
Kl. 15:00-18:00 frítt á skauta í boði Símans – bóka þarf pláss inná hjartasvellid.is 

Kl. 15 – 16 Cotton candy on a stick at the Grýla Cave by the Museum's Packhouse
Kl. 16:30-17 Sýningarhópur frá Listdansskóla Hafnarfjarðar dansar á Thorsplani, við Hjartasvellið og í Hellisgerði

————————————————————–

You'll find the Christmas spirit with us.  

Jólabærinn og Jólaþorpið iða allt af lífi og fjöri fyrir jólin. Fagurlega skreyttu hafnfirsku jólahúsin á Thorsplani eru fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir ýmisskonar spennandi gjafavöru, sælkerakrásir, handverk og hönnun.

Tilvalið er að leita að hinni fullkomnu jólagjöf í Jólaþorpinu á meðan notið er gómsætra veitinga sem ylja að innan. Jólasveinarnir koma í heimsókn allar helgar og Grýla verður á vappi um bæinn á sunnudögum.

Strandgata frá Lækjargötu að Linnetstíg breytist í göngugötu á meðan Jólaþorpið er opið. Það er gert til að dreifa umferð gangandi vegfaranda um miðbæinn og tryggja öryggi allra okkar góðu gesta. 

We are the Christmas town of Hafnarfjörður

Við tökum hlýlega á móti þér og þínum

Allt um jólabæinn Hafnarfjörð 👉 hfj.is/jol

Fylgdu okkur á Facebook and Instagram !

 

Suggestion portal