Byggðasafn Hafnarfjarðar verður með opið í þremur húsum á Safnanótt.
Opið verður frá 18-22 í Pakkhúsinu, Sívertsen húsi og Beggubúð.
The warehouse
Skemmtilegur ratleikur fyrir alla fjölskylduna.
18:00-19:00 Sjónaukasmiðja, þar verður hægt að föndra sinn eiginn sjónauka og skoða safnið nánar með honum.
18:30 Skátarnir úr Hraunbúum spila vel valin lög
20:00 Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur heldur erindið: Álfabyggðir og bannhelgi í Hafnarfirði: Tengsl hjátrúar við náttúrusýn.
Sívertsenhús
Annríki þjóðbúningar og skart sýna baðstofuverkin frá 18:00-22:00. Þar verður hægt að skoða þjóðbúninga og skart hjá hjónunum Guðrúnu Hildi Rosenkjær og Ásmundi Kristjánssyni.
Boutique
Kíktu í heimsókn í Beggubúð og skoðaðu það sem var til í verslunum Hafnarfjarðar á árum áður.
Á Safnanótt opna allflest söfn á höfuðborgarsvæðinu dyr sínar fram á kvöld og bjóða gestum að upplifa sýningar og viðburði af ýmsu tagi. Þá taka menningarstofnanir Hafnarfjarðar – Bókasafnið, Byggðasafnið og Hafnarborg – vel á móti gestum eins og vanalega með fjölbreyttri og líflegri dagskrá. Frítt er inn á öll söfnin og alla viðburði í tilefni kvöldsins.