Winter break in Hafnarfjörður – February 2026
There will be a half-term holiday in the primary schools and the Hafnarfjörður Music School on Thursday, 19th February and Friday, 20th February. Then, on Monday, 23rd February, there will be a joint…
Fimmtudaginn 26. febrúar kl. 18-20 bjóðum við ykkur til útgáfuhófs í tengslum við sýningu Unu Bjargar Magnúsdóttur, Fyllingu, sem stendur yfir í safninu til 1. mars.
Þá fögnum við útgáfu nýrrar bókar sem ber sama titil og sýningin en bókin inniheldur texta eftir Lani Yamamoto og Ragnar Helga Ólafsson, auk viðtals Páls Hauks Björnssonar við listamanninn. Einnig er í bókinni fjöldi ljósmynda af sýningunni, sem teknar voru af Vigfúsi Birgissyni.
Hönnun bókarinnar er í höndum Hrefnu Sigurðardóttur og útgefandi er Hafnarborg, með stuðningi frá Launasjóði listamanna og Myndlistarsjóði.
Á sýningunni stikar Una Björg nýtt rými innan aðalsalar Hafnarborgar og tvinnar þar saman tímalínur byggingarinnar, sögulegar og skáldaðar. Önnur verk eru unnin sérstaklega fyrir sýninguna, skúlptúrar, myndverk og pappírsverk, sem búa til fínlega frásögn sem reiðir sig á eiginleika rýmisins, efni þess og birtu, möguleika og takmarkanir. Sýningarstjóri er Þórdís Jóhannesdóttir.
Free admission – all are welcome.