Ýmsir skemmtilegir viðburðir verða fyrir alla fjölskylduna í vetrarfríi grunnskólanna, tónlistarskóla og að hluta til í leikskólum Hafnarfjarðar með tilkomu skráningardaga, dagana 24. og 25. október. Meðal annars verður Free swimming fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Við bendum á að frístund er lokuð þessa tvo vetrarfrísdaga. Þessir tveir dagar eru einnig skráningardagar í leikskólanum og minnum við foreldra á það.
Fimmtudagur 24. október
- Öll fjölskyldan fær FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
Port city
- Frjáls listsköpun – teikning og litir. Listasmiðja fyrir grunnskólabörn, kl. 13:00-15:00. Boðið verður upp á létta stemningu þar sem þátttakendur smiðjunnar geta komið saman og teiknað í samvinnu hvert við annað. Unnið verður sameiginlegt listaverk, með spunakenndum hætti, og myndast þannig ein stór teikning. Leiðbeinandi er Sigurður Ámundason.
Hafnarfjörður Library:
- Barmmerkjasmiðja – 10:00 – 12:00. Komdu og hannaðu þitt eigið barmmerki.
- Fjölskyldusmiðja fyrir 6 ára og eldri – 15:00 – 17:00. List, náttúra og sköpunargleði blandast saman í þessari skemmtilegu smiðju fyrir hressa krakka og foreldra. Þema dagsins eru Skrímsli og forynjur.
- Skynjunarleiksmiðja Plánetu – 15:00 – 16:30. Við bjóðum litlum krílum að koma í þroskandi og örvandi samverustund, þar sem þau geta leikið og kannað heiminn á litríkan og skemmtilegan máta með öðrum börnum.
Hafnarfjörður Museum of Local History
- Ratleikur í Pakkhúsinu – 11:00 – 15:00. Upplagt fyrir fjölskyldur að heimsækja safnið með ratleikinn sem leiðarvísi.
- Barnaleiðsögn í Pakkhúsinu – 12:00.
Nýsköpunarsetrið við Lækinn 17:00 – 22:00
- Spunaspil fyrir 15-16 ára! Húsið opnar klukkan 17:00 og hefst spilamennskan klukkan 18:00. Öll velkomin.
Föstudagur 25. október
- Öll fjölskyldan fær FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-20 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
Port city
- Hrekkjavöku-origami. Listasmiðja fyrir grunnskólabörn, kl. 13:00-15:00. Í smiðjunni fá þátttakendur að kynnast listinni að búa til origami, eða pappírsbrot, að japanskri hefð. Þá munu gestir læra að brjóta og móta pappírinn svo að í ferlinu verða til skuggalegar skreytingar í anda hrekkjavöku. Leiðbeinendur eru Yasuka Kawakami og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir. Leiðbeinendur smiðjunnar tala íslensku, ensku og japönsku.
Hafnarfjörður Library:
- 10:00 – 12:00 – Barmmerkjasmiðja
- 13:00 – Bíósýning fyrir yngri hópinn í fjölnotasal
- 13:00-17:00 – Ratleikur og sjálfstýrandi smiðja á barnadeild fyrir krakka á öllum aldri
Hafnarfjörður Museum of Local History
- Ratleikur í Pakkhúsinu – 11:00 – 15:00. Upplagt fyrir fjölskyldur að heimsækja safnið með ratleikinn sem leiðarvísi.
Laugardagur 26. október
Hafnarfjörður Library:
- 13:00-16:00 – Ratleikur og sjálfstýrandi smiðja á barnadeild fyrir krakka á öllum aldri
In addition, the Healthy Town of Hafnarfjörður has compiled A whole alphabet of ideas for lots of exciting and fun things. that people can take up at home or in their local area. There you can find plenty of ideas for something new and different to do on your own or with the family. Here on the website, you can also find a list of unique Natural phenomena and interesting places and a number of Walking and cycling route which run through Hafnarfjörður.
The health town of Hafnarfjörður offers children and their families to take part Fun bingo in the winter holiday, where you can find great ideas for fun and varied activities all over Hafnarfjörður for the whole family.
The health town of Hafnarfjörður wishes its residents and friends a happy winter holiday!