Farsældarvika: Brúarsmiðir – menningarmiðlararnir okkar
Brúarsmiðir eru menningarmiðlarar í hafnfirsku samfélagi. Þeir hjálpa foreldrum af erlendum uppruna að fóta sig í hafnfirsku skólakerfi fyrir börn sín. Þeir hjálpa einnig við skráningar og undirbúning frístundastarfs.
Brúarsmiðirnir hafa hjálpað mörgum
Hafnarfjarðarbær hefur þrjá brúarsmiði sem hjálpa foreldrum með erlendan bakgrunn að fóta sig í íslensku samfélagi. Smiðirnir þrír eru Elizabeth López Arriaga, Freyja Maria Cabrera og Rima Alhakeem. Sama tala þær þrjár spænsku, arabísku og ensku. Menningarmiðlararnir nota einnig túlka ef þess þarf fyrir önnur tungumál.
Samfélag Hafnarfjarðar hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum og orðið sífellt fjölbreyttara. Yfir 16% íbúa bæjarins af erlendum uppruna. Sú þróun kallar á markviss og fagleg úrræði sem tryggja jafnt aðgengi, þátttöku og vellíðan allra íbúa. Þar hafa brúarsmiðirnir gegnt lykilhlutverki.
Meðal 30 úrræða til farsældar barna
Brúarsmiðirnir eru meðal nærri 30 úrræða til að efla farsæld barna í Hafnarfirði. Farsældarvika stendur nú yfir á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að vekja athygli foreldra á breyttu vinnulagi sveitarfélaganna börnunum í hag. Nú starfa ólíkir sérfræðingar saman að því að tryggja börnunum réttu úrræðin hverju sinni.
Brúarsmiðir starfa á mótum skóla, frístundastarfs og fjölskyldna og veita ómetanlegan stuðning við börn af erlendum uppruna og foreldra þeirra. Þeir aðstoða fjölskyldur við að skilja íslenskt samfélag og þjónustukerfi, miðla upplýsingum, rjúfa tungumála- og menningarlegar hindranir og styðja foreldra til virkrar þátttöku í námi barna sinna og félagslífi. Með þessari vinnu skapast traust, betra samstarf milli heimila og stofnana og öruggara umhverfi fyrir börn.
Bætt aðlögun barna
Árangur starfs brúarsmiða birtist ekki aðeins í bættri aðlögun barna og aukinni þátttöku fjölskyldna, heldur einnig í sterkari samfélagslegri samheldni. Þegar foreldrar skilja kerfin, finna sig velkomna og treysta skóla- og frístundastarfi, eykst virkni, samskipti batna og líkur á jaðarsetningu minnka. Þetta hefur jákvæð áhrif á samfélagið í heild.
Vel unnin störf brúarsmiða í Hafnarfirði sýna skýrt að slík þjónusta er ekki tímabundið verkefni heldur nauðsynleg stoð í nútímalegu, fjölmenningarlegu sveitarfélagi. Að hlúa að og styrkja þetta starf er fjárfesting í börnum, fjölskyldum og framtíð Hafnarfjarðar.
- Parents and staff can contact the bridge-builders directly: bru@hafnarfjordur.is
Please state which language you require support in.
Myndatexti: Rima Alhakeem og Freyja Maria Cabrera eru brúarsmiðir okkar Hafnfirðinga.
