Well-being Week: Helgi observes children's behaviour and helps
Helgi Sigurður Karlsson starfar sem atferlisfræðingur í hafnfirskum leik- og grunnskólum. Hann er kallaður til þegar laga þarf umhverfið að þörfum nemenda og samstilla starfsfólk í viðbrögðum við hegðun þeirra.
Hagnýt atferðisgreining í skólunum
„Ég starfa sem atferlisfræðingur fyrir alla leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar. Hlutverk mitt er að styðja skóla og foreldra við að finna lausnir þegar barn á erfitt í skóla, til dæmis með hegðun, líðan, samskipti eða þátttöku í námi,“ segir Helgi Sigurður Karlsson, atferlisráðgjafi. Starf hans er meðal þrjátíu ólíkra úrræða á vegum Hafnarfjarðarbæjar til að efla farsæld barna.
Þjónusta hans er veitt á tveimur leiðum:
- Almenn ráðgjöf og fræðsla: Til dæmis þegar skóli eða starfsfólk leitar eftir almennum leiðbeiningum, stuðningi, fræðslu eða námskeiðum.
- Ráðgjöf vegna ákveðins barns: Þá er sótt formlega um þjónustu vegna barnsins. Málið fer fyrir viðeigandi fagnefnd (leik- eða grunnskóla) til samþykktar. Ef það er samþykkt, þá fær málið tímaramma hjá Helga sem er endurmetinn og uppfærður eftir þörfum.
Well-being Week is currently taking place in the capital region. The aim is to draw parents' attention to the municipalities' new way of working, for the benefit of the children. Various specialists are now working together to ensure the children receive the right support at all times.
Helgi segir að í vinnu sinni byggi hann fyrst og fremst á virknimati. „Ég veiti ráðgjöf til skóla um aðlögun umhverfis að þörfum nemenda, samstillingu starfsfólks í viðbrögðum við hegðun og uppsetningu styrkingarkerfa og viðbragðsáætlana þegar þess er þörf, til dæmis í tengslum við áhættu- eða ofbeldishegðun. Eftir atvikum vinn ég einnig með foreldrum og öðrum í nærumhverfi barnsins og tek þá að hluta MST-nálgun með samstillingu heimilis og skóla,“ segir hann. Þegar hann vinni með mál tengt ákveðnu barni byrji hann yfirleitt á að reyna að skilja hvaða aðstæður ýti undir vandann.
„Ég horfi í hvað barnið er að reyna að ná fram með hegðuninni; til dæmis að komast hjá erfiðum verkefnum, fá hjálp, fá hlé, fá athygli eða finna fyrir meira öryggi. Út frá því hjálpa ég skólanum og foreldrum að byggja upp skýra og raunhæfa áætlun,“ segir hann og nefnir dæmi:
- aðlögun á umhverfi og skipulagi dagsins
- samræmd viðbrögð fullorðinna (sama plan hjá öllum)
- styrking og umbun fyrir æskilega hegðun
- skýr viðbrögð þegar hegðun verður erfið
- öryggisáætlun ef hætta eða áhætta er til staðar
Hann vinnur eftir atvikum einnig beint með foreldrum og nærumhverfi barnsins. „Þá með það að markmiði að heimili og skóli vinni saman og stefni í sömu átt. Oft skiptir mestu að allir séu sammála um markmiðin og að barnið fái sömu skilaboð og stuðning í öllum aðstæðum,“ segir hann.
„Ég styð líka skóla í innleiðingu og notkun Beanfee og Beanfee Direct, sem eru verkfæri til að styðja jákvæða hegðun, skráningu og samræmd vinnubrögð. Ég tek einnig þátt í þróunarverkefnum, til dæmis lestrarverkefni í samstarfi Beanfee ehf. og Hafnarfjarðarbæjar, sem styrkt er af Rannís, þar sem markmiðið er að gera einfalt heimalestrarúrræði aðgengilegt fyrir foreldra.“
Já, starf Helga er eitt nærri 30 úrræðna sem finna má í verkfærakistu Hafnarfjarðarbæjar til að tryggja farsæld barnanna okkar.
