Fjölskylduráð Hafnarfjarðarbæjar auglýsir eftir umsóknum frá hagsmuna- og félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði velferðarmála árið 2027. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2026.
Fjölskylduráð auglýsir eftir umsóknum um styrki
Fjölskylduráð Hafnarfjarðarbæjar auglýsir eftir umsóknum frá hagsmuna- og félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði velferðarmála árið 2027.
Styrkirnir eru veittir árlega til verkefna sem gagnast íbúum Hafnarfjarðar og stuðla að aukinni velferð þeirra.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2026.
- Umsóknum skal skilað á netfangið fjolskyldurad@hafnarfjordur.is.