Fjörður in the top four places at the annual boccia tournament

News

Sveitir Fjarðar skipuðu fjögur efstu sætin í árlegu Þorramóti Fjarðar í boccia sem fram fór um helgina.  Bæjarstjórnum Hafnarfjarðar, Garðabæjar og stjórn ÍBH var boðið til þátttöku og lögðu þaulæfðir Fjarðarfélaga lið bæjarfulltrúana hvert á fætur öðru.

Keppnisandi og gleði á Þorramóti Fjarðar

Sveitir Fjarðar vermdu fjögur efstu sætin í árlegu Þorramóti Fjarðar í boccia. Mótið fór fram um helgina í Víðistaðaskóla. Bæjarfulltrúar Hafnarfjarðar, og Garðabæjar sem og stjórn ÍBH var boðið til þátttöku og sýndu, annað árið í röð, að það gerir gæfumuninn að æfa til að ná árangri.

  1. sæti: Raggi og Sverrir
  2. sæti: Guðrún, Ingibjörg og Kristín
  3. sæti: Agnes. Bensi og Dóra Dís
  4. sæti: Freyja, Rósi og Hlynur

Valgerður Gaflari ársins

Afar ánægjuleg stund var í upphafi leika þegar Valgerður Hróðmarsdóttir bocciaþjálfari val varinn Gaflarinn 2026 af Lyonsklúbbi Hafnarfjarðar og við óskum henni til hamingju. Valgerður stýrði mótinu af myndarbrag. Kíwanisklúbburinn Sólborg sá um kaffiveitingar í mótshléi og dómarar komu frá Lionsklúbbi Hafnarfjarðar.

Þau eru orðin rétt rúmlega 20 árin sem Fjörður, íþróttafélag fatlaðra í Hafnarfirði, hefur haldið Þorramótið. Þátttaka hefur alltaf verið góð, skemmtunin mikil og samhliða hefur félagið og íþróttin fengið góða og verðskuldaða kynningu.

Valgerður Hróðmarsdóttir, Vala, bocciaþjálfari val varinn Gaflarinn 2026 af Lyonsklúbbi Hafnarfjarðar.

Gefandi árleg keppni

„Þetta veitir okkar iðkendum sérstaka gleði. Þorramótið er mikil hátíð hjá iðkendum,“ segir Þröstur Erlingsson, formaður íþróttafélagsins Fjarðar.  „Já mótið er einn af hápunktum ársins. Það myndast vinskapur og það skiptir miklu. Þarna voru flottir fulltrúar Fjarðar. Einn þeirra, Ragnar Björnsson, varð íslandsmeistari í Boccia. Hann er orðinn rosa öflugur og með mikinn metnað,“ segir hann.

„Svo er Vala okkar potturinn og pannan í þessu. Hún er Gaflari ársins verðskuldað. Búin að vera í félaginu frá árinu 1992 og aldrei tekið krónu fyrir og er með okkur af hugsjón. Hún er búin að segja okkur að það fari að koma að lokum og það verður erfitt að fylla skóna hennar. Einstök manneskja.“

Æfa tvisvar í viku

Fulltrúar Fjarðar hafa gott forskot á bæjarfulltrúana þegar kemur að boccia. Þau æfa tvisvar sinnum í viku. Einnig æfa félagar Fjarðar sundæfingar allt að 7 sinnum í viku, frjálsar og kraftlyftingar.

„Það er afar mikilvægt fyrir hópinn að hafa félagsskapinn og hreyfinguna. Þetta gerir svo mikið fyrir þau.“

Já, þetta er skemmtilegt – svo hressandi að allar líkur eru á að gamanið verði endurtekið að ári.

Suggestion portal