Forty-five plots to be advertised for allocation in Skarðshlíð
The Municipality of Hafnarfjörður has advertised 45 plots for around 90 flats for allocation in a new and sustainable housing development in Skarðshlíð.
Hafnarfjarðarbær hefur auglýst 45 lóðir fyrir um 90
íbúðir til úthlutunar í nýju og vistvænu íbúðahverfi í Skarðshlíð. Svæðið
liggur sunnan og vestan Ásfjalls og er skjólsælt svæði umvafið gríðarlegri
náttúrufegurð. Í skipulagi og hönnun er rík áhersla lögð á heildræna sýn,
vistvænt skipulag, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði.
Um er að ræða fjórar einbýlishúslóðir og ellefu
parhúsalóðir sem eru lausar til úthlutunar. Einstaklingar ganga fyrir við
úthlutun á lóðunum og hægt er að skoða og sækja um rafrænt á „Mínar
síður“ á vef Hafnarfjarðarbæjar. Umsókn um lóð verður tekin fyrir á
bæjarráðsfundi þegar öll fylgigögn eru komin. Séu tvær eða fleiri umsóknir um
sömu lóð á bæjarráðsfundi er dregið á milli umsækjanda.
Þá er óskað eftir tilboðum lögaðila í 25
tvíbýlishúsalóðir, 4 raðhúsalóðir og 3 fjölskylduhúsalóðir. Búið er að marka
lágmarksverð í lóðirnar og teljast tilboð undir lágmarksverði ógild. Hægt er að
skoða og sækja um rafrænt á „Mínar síður“ á vef Hafnarfjarðarbæjar.
Tilboð í lóð verður tekið fyrir á bæjarráðsfundi þegar öll fylgigögn eru komin.
Öll aðstaða verður til fyrirmyndar í hverfinu og til marks um það var fyrsta skóflustunga að Skarðshlíðarskóla tekin í haust sem leið og standa framkvæmdir yfir við hann núna. Skólinn mun samanstanda af húsnæði fyrir 2ja hliðstæðu grunnskóla um 6.800 m2, tónlistarskóla um 480 m2, leikskóla um 760 m2 og íþróttahús um 870 m2, samtals um 8.910 m2. Byggingarnar verða hannaðar samkvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar. Í því felst að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíðan alls fólks í fyrir rúmi.
Sjá nánari upplýsingar, skipulagsuppdrátt, skilmála,verðskrá, yfirlit yfir lausar lóðir á hafnarfjordur.is og umsóknarform á MÍNARSÍÐUR