FRÉTT UM HAMRANESLÍNU FAGNAÐ

News

Bæjaryfirvöld eru því þakklát Fréttablaðinu að vekja máls á því hversu áríðandi það er að Hamraneslína víki.

Vegna fréttar Fréttablaðsins í gær, föstudaginn 19. janúar þá er það  rétt að nokkrum
lóðum í Skarðshlíð hefur verið skilað inn til bæjarins en stærstur hluti þeirra
hefur farið í úthlutun þeirra sem voru á biðlistum eftir lóðum í hverfinu. Þeir
aðilar sem skilað hafa lóðum hafa einkum borið við tveimur ástæðum. Annarsvegar
að fjármögnun fyrir viðkomandi framkvæmda hafi ekki tekist og hins vegar sú
óvissa sem skapast hefur vegna kæru ferla sem nú er til meðferðar er varða
flutnings Landsnets á Hamraneslínu sem þverar Skarðshlíðarhverfið.

BÆJARSTJÓRI VAKTI ATHYGLI Á MÁLINU Á OPNUM FUNDUM Í HAUST

Staðan varðandi línurnar og innskil lóða vegna þeirra er
staða sem bæjarstjóri Hafnarfjarðar hefur sjálfur verið að vekja athygli á
síðan í haust á kynningarfundum vegna fyrirhugaðs flutnings línunnar. Þeir
fundir voru haldnir af Landsneti með sveitarstjórnum Kópavogs og Garðabæjar þar
sem staða flutnings línur og það ferli hefur verið til umfjöllunar en það ferli
hefur mætt andstöðu Hraunavina meðal annars. Bæjaryfirvöld eru því þakklát
Fréttablaðinu að vekja máls á því hversu áríðandi það er að Hamraneslína víki.

 

SAMNINGAR VERÐA AÐ STANDA

Íbúar, rekstraraðilar og Hafnarfjarðarbær hafa fjárfest og
er að fjárfesta í Skarðshlíðarhverfi fyrir marga tugi milljarða. Í haust var hafist handa við byggingu
Skarðshlíðarskóla sem er allt í senn grunnskóli, tónlistarskóli og leikskóli sem
er framkvæmd uppá tæpa fjóra milljarða króna.
Það er því algjörlega ólíðandi staða fyrir verðandi íbúa hverfisins, íbúa í
nærliggjandi hverfum og bæjaryfirvöld að þurfa þola síendurtekin breytingar á
þessu ferli sem átti samkvæmt fyrstu samningum að vera löngu yfirstaðið.  

Það er því gríðarlega mikilvægt að staðið verðið við
núgildandi samning milli Landsnets og Hafnarfjarðarbæjar um brottflutning
línunnar og hún víki úr hverfinu hið fyrsta. Núgildandi samningur gerir ráð
fyrir því að það verði fyrir lok árs.

Hafnarfjarðarbæjar mun auglýsa þær lóðir sem eftir eru til úthlutunar  í
febrúar.

http://www.visir.is/g/2018180118711/thridjungi-loda-i-skardshlid-skilad-aftur-til-baejarins-

Suggestion portal