Frístundastyrkur hækkar – Börn frá 3ja ára fá styrk 

News

Frístundastyrkur barna og ungmenna í Hafnarfirði hækkar úr 57 í 65 þúsund krónur á nýju ári. Frá 1. janúar fá þriggja til fjögurra ára börn styrk í fyrsta sinn, rétt eins og fimm ára börn sem hafa fengið hálfan styrk frá því í haust.

Frístundastyrkur fyrir fleiri börn

Frístundastyrkur barna og ungmenna í Hafnarfirði hækkar úr 57 í 65 þúsund krónur á nýju ári. Frá 1. janúar fá þriggja til fjögurra ára börn styrk í fyrsta sinn, rétt eins og fimm ára börn sem hafa fengið hálfan styrk frá því í haust. Hálfur styrkur nemur 32.500 þúsund krónum á ári. Önnur stór breyting er að foreldrar geta nú fengið styrkinn greiddan út í einu lagi.  

„Það hefur bæði verið ákall frá samfélaginu að fara þessa leið,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri. Hann segir mikilvægt að byrja að stunda tómstundir og íþróttir sem fyrst og gera að lífsstíl sínum út lífið. „Með þessu skrefi gerum við foreldrum auðveldara að fullnýta þau tækifæri sem eru í boði þegar fjölskyldunni hentar best.“ 

Helsti kostur nýs fyrirkomulags umfram það gamla er einmitt að nú safnast öll upphæðin saman og nýtist þegar óskað er ólíkt því sem áður var. Þá var hluti upphæðarinnar bundinn í  hverjum mánuði og fór forgörðum þá mánuði sem foreldrar náðu ekki að nýta sér fastan mánaðarlegan styrk. 

„Breytingin er mikið réttlætismál,“ segir Valdimar. „Við höfum horft á foreldra missa af frístundastyrknum en svona nýtist hann allur. Breytingin gerir nefnilega foreldrum kleift að nýta styrkinn betur, þjónustan við barnafólk eykst og gefur færi á sveigjanleika, því áður var upphæðin bundin hverjum mánuði en nú má nýta hana á einu bretti – ef það hentar fjölskyldum betur.“ 

Flækjustig verður á fyrstu dögum nýs árs vegna breytinganna, þegar skipt verður um greiðslufyrirkomulag við íþróttafélögin. Sumar fjölskyldur hafa þegar bundið hluta styrksins inn í nýtt ár hjá íþróttafélagi sínu með skráningu fram á vorið og jafnvel haustið 2026. Þessar fjölskyldur munu frá og með 2. janúar sjá eftirstandandi upphæð í Abler smáforritinu að frádregnum þeim styrk sem þegar hefur verið úthlutað á árinu 2025 í námskeið á árinu 2026. Þær fjölskyldur sem ekki hafa valið tómstund fyrir barn sitt inn í nýja árið, sjá heildarupphæð eða 65.000 kr.   

Frístundastyrkurinn sem greiddur verður  á árinu 2026 mun nema 65 þúsund krónunum fyrir börn frá sex ára aldri og 32.500 fyrir börn fimm ára og yngri.  

Suggestion portal