Playing fields at Hamravellir and Hvammur this summer
The playgrounds are open the weeks of 24th-28th July and 31st July-4th August, at Hamravellir and Hvammur.
Playing fields at Hamravellir and Hvammur this summer
Í sumar eru starfræktir gæsluvellir/róló við leikskólann Hvammur að Staðarhvammi 23 og leikskólann Hamravellir að Hvannavöllum 1. Gæsluvellirnir verða opnir frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00, vikurnar 24. júlí-28. júlí og 31. júlí- 4. ágúst.
Gæsluvellirnir eru fyrir börn á aldrinum 2–5 ára (fædd 2021-2018). Börnin þurfa að mæta klædd eftir veðri og gott er að hafa nesti með sér.
Hægt er að skrá sig inn á sumar.vala.is, og hægt er að velja bæði 5 eða 10 skipta kort.
General information for parents
Gæsluvöllurinn er einungis ætlaður til útileikja og getur ekki komið í stað leikskóla. Því er ráðlagt að hafa ung börn ekki lengur en 1,5 klst. í senn á dag. Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta notað salernið sjálf. Einnig þurfa börnin að vera klædd eftir veðri. Gott er að börnin hafi meðferðis vatnsbrúsa og létta hressingu.
Umsjónarmenn námskeiðsins:
Breki Snorrason í síma: 664-7121
Sigríður Diljá Vilhjálmsdóttir í síma: 664-7123.
We look forward to seeing you!