Gæsluvöllur , Róló – Sumar 2015
Í sumar verður starfræktur Gæsluvöllur að Smyrlahrauni 41a, frá 8. júlí – 5. ágúst fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára (fædd 2009-2013). Opnunartími er frá kl. 8:30 – 12 og frá kl. 13 – 16:30 – lokað í hádeginu.
Í sumar verður starfræktur Gæsluvöllur eða róló, staðsettur að Smyrlahrauni 41a, frá 8. júlí – 5. ágúst fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára (fædd 2009-2013).
Opnunartími er frá kl. 8:30 – 12 og frá kl. 13 – 16:30 (Það er lokað í hádeginu).
Í boði eru tvennskonar klippikort á Gæsluvöllinn:
5 skipta klippikort – 1.100 kr.
10 skipta klippikort – 2.000 kr.
Hægt er að kaupa klippikortin á mínum síðum á – skráning á sumarnámskeið 2015
Á mínum síðum er aðeins hægt að greiða með kreditkorti en hægt er að staðgreiða klippikortin í Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar, Strandgötu 6.
Upplýsingar eru í síma 664-5533 eða á http://www.tomstund.is/. Umsjónarmaður námskeiðsins er Sædís Kjærbech Finnbogadóttir en hún er nemi í tómstunda- og félagsmálafræði í Háskóla Íslands.
General information for parents
Gæsluvöllurinn er einungis ætlaður til útileikja og getur ekki komið í stað leikskóla. Því er ráðlagt að hafa ung börn EKKI lengur en einn og hálfan tíma í senn á dag.
Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta notað salernið sjálf.
Einnig þurfa börnin að koma með nesti með sér og vera klædd eftir veðri.
We look forward to seeing you!