Change to the arrangement of the 2020 fast days
Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá miðvikudeginum 20. maí til miðnættis laugardaginn 23. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu.
Sú breyting verður á hreinsunardögunum í ár að settir verða upp gámar fyrir garðúrgang við alla grunnskóla sveitarfélagsins. Gámarnir verða við skólana frá morgni fimmtudagsins 21. maí til kl. 17 sunnudaginn 24. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum í gáminn. Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar.
Dagana 21. maí – 24. maí standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni Let's clean up Hafnarfjörður en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við grunnskóla hverfisins. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð. Hreinsunardagar eru þegar hafnir hjá mörgum íbúum enda hefur veður, meiri viðvera heima við og staðan í samfélaginu ýtt undir framkvæmdagleði og löngun í útiveru. Íbúar sem nú þegar eru komnir með poka við lóðarmörkin eru vinsamlega beðnir um að fara með pokana beint á Sorpu eða sýna biðlund þar til gámum verður komið upp við skólana fimmtudaginn 21. maí.
Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér
Breyting á fyrirkomulagi hreinsunar milli ára
Síðustu ár hefur garðúrgangur verið sóttur heim til íbúa en í ljósi aðstæðna í ár hefur verið ákveðið að breyta fyrirkomulagi og framkvæmd þjónustunnar. Fordæmalausir tímar kalla á aukna varfærni og sóttvarnir auk þess sem tilvist þjónustunnar hefur verið til umræðu síðustu misseri. Vonir standa til þess að breytt fyrirkomulag nú í ár leiði til þess að magn plastpoka og urðun tengd garðhreinsun minnki og að endurnýting og moltugerð aukist. Þannig verði breytingin jafnframt liður í því að minnka losun og mengun heilt yfir. Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir og margnota poka.
Skyldur lóðareigenda
Að gefnu tilefni er sérstök athygli vakin á því að Landowners are required to keep the growth of trees and shrubs on the plot within the boundaries of the plot. . Trjágróðurinn getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eins er lóðareigendum bent á að ákveðnar reglur gilda um byggingu á skjólvegg og grindverki innan lóðar which is worth looking into before you set off.
Hreinsum Hafnarfjörð!
Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!