Gói, Nína Dögg og mörg fleiri í myndbandi foreldraráðsins – Sjáðu
„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En það þarf líka hugrekki til þess að láta sig málið varða,“ segir Vala Steinsdóttir, formaður foreldraráðs Hafnarfjarðar, í nýju myndbandi ráðsins. Fjöldi þekktra einstaklinga tekur þátt, gefur ráð og hvetur til lífs, hreyfingar og afþreyingu í raunheimum. Sjáðu myndbandið.
Hvatningarmyndband foreldraráðsins
„Leggjum frá okkur símana og gerum eitthvað skemmtilegt saman,“ segir Guðjón Karlsson, Gói leikari, í nýju myndbandi foreldraráðs Hafnarfjarðarbæjar. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona botnar: „Eins og til dæmis að fara í sund.“
Draumarnir rætast
Fjöldi þekktra einstaklinga leggja Foreldraráði Hafnarfjarðar lið í myndbandinu. Nína Dögg Filippusdóttir leikkona, Elín Klara Þorkelsdóttir landliðskona í handbolta og íþróttakona Hafnarfjarðar 2023 og 2024, Bjarni Fritz þjálfari og Anton Sveinn McKee, Íslands og Norðurlandameistari í sundi og Ólympíufari sem hvetur unga fólkið og fjölskyldur þeirra til að setja sér stór markmið.
„Draumarnir rætast í raunheimum,“ segir hann. Silja Úlfarsdóttir þjálfari og hlaðvarpsstjórnandi hvetur öll til að huga að svefni og næringu. „Við ætlum að fara út að hreyfa okkur.“ Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir sjónvarpskona bendir á að nýta nærumhverfið. Þorgrímur Þráinsson hvetur til samskipta. Tvö ný orð á dag séu fjársjóður til frambúðar.
We are the village
Vala Steinsdóttir, formaður foreldraráðs Hafnarfjarðar, bendir á að það þarf heilt þorp til að ala upp barn. „En það þarf líka hugrekki til þess að láta sig málið varða. Við í foreldraráði trúum því að með sameiginlegu átaki getum við byggt upp samfélag þar sem að börnin okkar fá að blómstra.“
Myndbandið var sýnt á síðasta fundi fundaraðarinnar Við erum þorpið. Fundurinn bar yfirskriftina: Horfumst í augu. Fundaröðin er um líðan og öryggi ungs fólks. Hún er jafnframt hluti af vegferð Hafnarfjarðarbæjar að hljóta viðurkenningu sem child-friendly municipality UNICEF in Iceland.
„Þetta byrjar hjá okkur,“ sagði Vala formaður foreldraráðsins. „Við erum þorpið.“
Myndir/Skjáskot úr myndbandinu