Gripið til aðgerða gegn myglu á Hamravöllum
Endurskipuleggja þurfti leikskólastarf með hraði á Hamravöllum á fimmtudag þegar ljóst var að mygla leyndist á tveimur deildum. Hluti barnanna er nú á sal og annar kominn með kennurum sínum tímabundið í Hraunvallaleikskóla. Viðgerðir og hreinsun eru þegar hafnar.
Mygla á tveimur deildum af sex á Hamravöllum
Mygla hefur greinst á deildunum Mosakoti og Birkikoti í leikskólanum Hamravöllum hér í Hafnarfjarðarbæ. Hratt var gripið til ráðstafana og leikskólastarfið endurskipulagt. Framkvæmdir hófust á föstudag. Rýmin eru nú hreinsuð og sótthreinsuð með sérstökum hætti sem vinnur á myglunni, gluggar þéttir og kuldabrú löguð.
Yngstu börnin eru á þessum tveimur deildum. Þau fengu nýjan stað á leikskólanum sínum og eldri börn færð á sal og á deild, sem þau hafa ein með kennurum sínum, í Hraunvallaleikskóla.
Börnin mættu í gær mánudag á nýju fletina sína. Starfsfólk var lausnarmiðað og foreldrar og börnin hafa sýnt sveigjanleika og skilning.
Mikilvægt að skoða húsnæðið vel
Sýnataka fór fram í öllum fjórum deildum í aðalbyggingu leikskólans 9. nóvember til að meta ástand innilofts. Cowi Ísland ehf. sá um hana. Bærinn fékk svo skýrsluna síðdegis miðvikudaginn 18. nóvember og hóf undirbúning. Börnin á deildunum tveimur voru heima á föstudag.
Samkvæmt niðurstöðum mældust 110 myglugró í rúmmetra lofts á Mosakoti og 40 á Birkikoti. Mælingar á bæði Hraunkoti og Hvannakoti mældust áþekkar því sem er í útilofti.
Ekki eru til skilgreind opinber mörk fyrir magn myglugróa í innilofti, samkvæmt skýrslunni. Þó kemur þarf fram að óopinbert viðmið sé að magn undir 60 gróum í rúmmetra geti talist innan eðlilegra marka. Mælingin á Mosakoti, 110 gró/m³, var því talsvert yfir því viðmiði.
Mæling á Birkikoti, 40 gró/m³, var undir því tölulega viðmiði en allur er varinn góður og segir því í skýrslunni að þörf sé á frekari skoðun á rýmunum til að kanna hvort leyndar rakaskemmdir séu til staðar. Og við því er brugðist.

Hér má sjá mælingu sérfræðinga COWI.
Starfið skipulagt og foreldrar upplýstir
Foreldrar og forsjáraðilar barna á Hamravöllum og Hraunvallaleikskóla voru upplýstir um stöðuna á fimmtudag.
Við framkvæmdirnar verður fylgt þeim ráðleggingum sem koma fram í skýrslunni, meðal annars um að einangra vinnusvæðin og koma í veg fyrir að gró berist um bygginguna við niðurrif rakaskemmdra byggingarefna.
- Skýrsluna má lesa here.