Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Guðlaugu Ósk Gísladóttur í stöðu sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar. Guðlaug hefur starfað sem deildarstjóri þjónustu- og ráðgjafadeildar hjá velferðarsviði Kópavogsbæjar frá árinu 2000. Guðlaug mun hefja störf í upphafi á nýju ári.
Guðlaug hefur víðtæka og yfirgripsmikla stjórnunarreynslu og þekkingu á sviði félagsmála, komið að innleiðingu stórra verkefna frá ríki til sveitarfélaga, gerð nýrra reglna og samningagerð við þriðja aðila, haft aðkomu að mótun eftirlits með þjónustu, setið í ýmsum samráðshópum og komið að stefnumótun og uppbyggingu úrræða í málaflokkum. Í störfum sínum hefur Guðlaug haft yfirstjórn með starfsstöðvum í málefnum fatlað fólks, heimilum og vinnustöðum, ferðaþjónustu, stuðnings- og stoðþjónustu við fatlað fólk og NPA samningum auk þess að vera starfsmaður í notendaráði fatlaðs fólks. Guðlaug er með MPA í opinberri stjórnsýslu, BA í félagsfræði og starfsréttindi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands Hún hefur setið í stjórn Píeta á Íslandi frá vori 2020.
Guðlaug Ósk tekur við starfinu af Rannveigu Einarsdóttur sem ráðin hefur verið sem sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Intellecta annaðist ráðningarferlið og sóttu 26 um stöðuna en þrír drógu umsókn sína til baka.
Við bjóðum Guðlaugu Ósk velkomna til starfa!
