Hafnarfjarðarbær kaupir gömlu skattstofuna
Í dag undirrituðu Fjármála- og efnahagsráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs og Hafnarfjarðarbær kaupsamning um Suðurgötu 14 í Hafnarfirði. Um er að ræða tæplega 1300 fermetra húseign sem áður hýsti gömlu skattstofuna
Í dag undirrituðu Fjármála- og efnahagsráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs og Hafnarfjarðarbær kaupsamning um Suðurgötu 14 í Hafnarfirði. Um er að ræða tæplega 1300 fermetra húseign sem áður hýsti gömlu skattstofuna. Hafnarfjarðarbær hyggst nýta húsnæðið fyrir vinnustað og þjónustu fyrir fatlað fólk, auk annarrar starfsemi sem rúmast getur í húsinu. Kaupverð eignarinnar er 256 milljónir og verður húsnæðið afhent 1. nóvember samkvæmt samningnum.
Það voru þeir Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra og Haraldur L. Haraldsson sem undirrituðu samninganna núna uppúr hádegi í Ráðhúsi Hafnarfjarðar.