Hafnarfjörður Municipality and the Technical College reach an agreement

News

Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn hafa náð samkomulagi, í samráði við stjórnvöld, um skiptingu kostnaðar sem undirbúningur uppbyggingar Tækniskólans við Flensborgarhöfn hefur haft í för með sér.

Samið við Tækniskólann 

Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn hafa náð samkomulagi, í samráði við stjórnvöld, um skiptingu kostnaðar sem undirbúningur uppbyggingar Tækniskólans við Flensborgarhöfn hefur haft í för með sér. Samkvæmt samkomulaginu mun hlutdeild Hafnarfjarðarbæjar vegna kostnaðar sem fallið hefur til vera 248 milljónir króna.

Eins og fram kom í sameiginlegri yfirlýsingu aðilanna í september síðastliðnum var ákveðið í sátt að hverfa frá áformum um uppbyggingu Tækniskólans við Flensborgarhöfn.

Frá þeim tíma hafa aðilar átt í viðræðum um uppgjör kostnaðar sem fallið hefur til vegna verkefnisins. Við þá vinnu hefur meðal annars verið horft til hönnunarkostnaðar, greiningarvinnu og úttekta sem ráðist var í á undirbúningsstigi. Ljóst er að báðir aðilar hafa lagt í umtalsverðan beinan og óbeinan kostnað vegna verkefnisins og hefur það verið haft til hliðsjónar við niðurstöðu viðræðnanna.

Viðræðurnar hafa farið fram í nánu og góðu samstarfi þar sem báðir aðilar hafa lagt áherslu á að nálgast málið af heilindum og finna sanngjarna lausn á flókinni stöðu. Niðurstaðan endurspeglar sameiginlegan vilja til að ljúka uppgjöri vegna verkefnisins með faglegum og farsælum hætti.

Hafnarfjarðarbær, Tækniskólinn og stjórnvöld eru sammála um mikilvægi þess að áfram verði unnið að framtíðaruppbyggingu Tækniskólans á nýjum stað þannig að skólinn geti sinnt vaxandi þörf fyrir öflugt starfs- og tækninám á Íslandi.

 

 

 

Suggestion portal