Christmas tree care
From 11th to 13th January, staff from the Hafnarfjörður Service Centre will be collecting Christmas trees in the town.
Dagana 11. – 13. janúar munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Hafnarfjarðar annast hirðingu jólatrjáa í bænum. Þeir bæjarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðarmörk ekki seinna en á þessum dagsetningum. Jafnframt taka
recycling centres á móti jólatrjám.
Hin hlið flugeldanna – hreinsun og förgun
Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flugeldum er skotið á loft. Það er eins í þessu eins og svo mörgu öðru að margar hendur vinna létt verk. Við hvetjum íbúa Hafnarfjarðarbæjar að sýna gott fordæmi, hreinsa upp eftir sig og koma í förgun á næstu endurvinnslustöð. Ef sem flestir gefa sér tíma í það á nýja árinu að fegra nærumhverfi sitt og aðstoða þá komum við bænum í gott horf fljótt og örugglega að áramótunum liðnum.