Hafnarfjörður Choir Fund
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum í kórsjóð Hafnarfjarðar.
Kórsjóður Hafnarfjarðar styður við öflugt og fjölbreytt kórastarf í bænum.
Markmið sjóðsins er að efla reglubundið kórastarf og styrkja þau menningarlegu og samfélagslegu verðmæti sem kórar skapa fyrir bæjarbúa á öllum aldri.
Menningar- og ferðamálanefnd auglýsir árlega eftir umsóknum. Heimilt er að gera samninga til eins til þriggja ára í senn, með fyrirvara um árlega samþykkt fjárhagsáætlunar. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur vegna styrkja úr kórsjóði Hafnarfjarðar.
Hverjir geta sótt um?
Veittur er rekstrar- og starfsemisstyrkur til kóra sem:
- eru með fasta og reglubundna starfsemi í Hafnarfirði
- halda reglulegar æfingar og stunda virkt kórastarf
- hafa sýnt fram á gildi sitt í menningarlífi bæjarins
Ekki er veittur styrkur til ferðalaga, náms eða endurmenntunar einstaklinga né til einstaka viðburða.
- Hvað þarf að koma fram í umsókn?
- Lýsing á kórnum og starfsemi hans
- Markmið og hlutverk í menningarlífi Hafnarfjarðar
- Fjöldi þátttakenda og markhópur
- Yfirlit yfir reglubundna starfsemi (æfingar, tónleikar o.fl.)
- Styrkupphæð sem sótt er um
- Rekstraráætlun eða rekstraryfirlit
- Upplýsingar um aðra fjármögnun
Menningar- og ferðamálanefnd metur umsóknir. Horft er til starfsemi og samfellu í starfi, listrænna og samfélagslegra gæða, skipulags og raunhæfni rekstrar, sem og mikilvægis kórsins fyrir menningarlíf Hafnarfjarðar.
Styrkþegar skuldbinda sig til að:
- koma fram að lágmarki einu sinni á ári á viðburði á vegum bæjarins eða í samstarfi við hann
- geta stuðnings Hafnarfjarðarbæjar í kynningarefni