Parent Council's Encouragement Award presented this evening
Hvatningarverðlaun Foreldraráðs Hafnarfjarðar verða veitt í kvöld. Afhendingin er árleg. Þar er fólki sem leggur tíma orku og kærleika í samfélagið fagnað.
Áfram foreldrar!
Hvatningarverðlaun Foreldraráðs Hafnarfjaðrar 2025 verða veitt í kvöld í Ástjarnarkirkju. Athöfnin hefst kl. 20.
Margt er á dagskrá:
- Bæjarstjóri flytur ávarp
- Formaður foreldraráðsins ávarpar
- Stella Björg Kristinsdóttir, fagstjóri forvarna- og frístundastarfs, segir frá samstöðunni í þorpinu
- Skemmtiatriði – School of Rock – nemendur úr Setbergsskóla
- Viðurkenningar verða veittar fyrir óeigingjörn störf í foreldrafélögum bæjarins
- Loks verða Hvatningarverðlaun Foreldraráðs 2025 veitt.
„Við hlökkum til að sjá ykkur og fagna saman þessu frábæra fólki sem leggur tíma, orku og kærleika í að gera bæjarfélagið okkar að enn betri stað,“ segir Vala Steinsdóttir, formaður Foreldraráðs Hafnarfjarðar og hvetur fólk til að mæta.
Já, samstaða foreldra skiptir máli.