Hver á best skreytta húsið? Frestur rennur út í dag!
Frestur til tilnefninga fyrir best skreytta jólahúsið í Hafnarfirði rennur út í dag en senda má ábendingar á jolathorp@hafnarfjordur.is til og með 15. desember.
Frestur til tilnefninga fyrir best skreytta jólahúsið í Hafnarfirði rennur út í dag en senda má ábendingar á jolathorp@hafnarfjordur.is til og með 15. desember.
Í nóvember voru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar hvattir til þess að setja upp stóru jólagleraugun og senda inn ábendingar um þau hús í Hafnarfirði sem þykja bera af í jólaskreytingunum þetta árið. Bæjarbúar hafa heldur betur tekið hvatningunni um að skreyta hús sín og lýsa upp skammdegið vel og nú styttist óðum til jóla. Á Þorláksmessu verða veitt verðlaun fyrir best skreyttu íbúðarhúsin og best skreyttu götuna í Hafnarfirði.
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar mun sjá um val á best skreytta húsinu.
Hellisgata 34 hefur oftar en einu sinni fengið viðurkenningu fyrir skemmtilegar og fallegar jólaskreytingar.