Christmas and New Year's greetings from the Mayor
Jólabærinn Hafnarfjörður hefur svo sannarlega staðið undir nafni þetta árið. Ég óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Kæru Hafnfirðingar,
Það er eitthvað alveg einstakt við það að ganga um Hafnarfjörð í desember, sjá ljósin kvikna, heyra kliðinn og finna hlýjuna sem fylgir jólunum. Jólabærinn Hafnarfjörður hefur svo sannarlega staðið undir nafni þetta árið, þökk sé ykkur öllum sem takið virkan þátt í gleðinni.
Nú er tæpt ár síðan ég tók við sem bæjarstjóri og ég horfi með stolti yfir árið sem er að líða. Hér er öflugt og hlýtt samfélag. Okkar fallegi bær, sem er mótaður af sjónum og hrauninu, er fullur af fólki sem tekur þátt, lætur sig málin varða og leggur sitt að mörkum til að gera Hafnarfjörð að enn betri stað.
Um leið og við gleðjumst yfir aðventunni og jólahátíðinni sem er handan við hornið þurfum við að hafa í huga að það eru ekki allir sem upplifa þennan tíma eins. Meðal okkar gengur fólk í gegnum erfiða tíma, glíma við áhyggjur, einmanaleika eða sorg. Hugur minn er sérstaklega hjá þeim nú á aðventunni, um jólin og áramótin. Ég vil hvetja okkur öll til að líta í kringum okkur, heilsa, brosa og rétta fram hjálparhönd þar sem þörf er á.
Fram undan er nýtt ár með nýjum verkefnum og tækifærum. Ég hlakka til að halda áfram að vinna með ykkur að því að gera Hafnarfjörð enn betri fyrir okkur öll sem hér búum og störfum.
Samtal við ykkur bæjarbúa skiptir mig miklu máli og ég hvet ykkur til að halda áfram að láta í ykkur heyra, koma hugmyndum, ábendingum og spurningum á framfæri. Ég er bæjarstjóri allra Hafnfirðinga og er hérna fyrir ykkur.
Um leið og ég þakka ykkur fyrir árið sem er að líða og það traust sem þið sýnið mér í starfi bæjarstjóra, óska ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Með jóla- og nýárskveðju,
Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar