Christmas Heart of Hafnarfjörður at Bæjarbíó during Advent
Bæjarbíó og Mathiesen stofan skipa mikilvægan sess í hjörtum bæjarbúa og vina Hafnarfjarðar sem þangað sækja viðburði og upplyftingu á aðventunni. Ýmsir dagskrárliðir eru í boði sem fastagestir geta stólað á, ár eftir ár, en einnig er bryddað upp á nýjungum eins og rekstraraðilunum einum er lagið. Í ár töfrar Bæjarbíó fram tónlistarhátíðina Jólahjarta Hafnarfjarðar í allri sinni dýrð sem er með svipuðu sniði og aðrar tónlistarhátíðir tengdar Bæjarbíói – í upphituðu fagurlega skreyttu risatjaldi í bakgarðinum. Þar verða trúbadorar, skífuþeytar og „singalong“ sem kæta mannskapinn og hægt að kaupa hina margrómuðu humarsúpu frá Tilverunni. Frítt er inn á svæðið.
Town Cinema og Mathiesen stofan skipa mikilvægan sess í hjörtum bæjarbúa og vina Hafnarfjarðar sem þangað sækja viðburði og upplyftingu á aðventunni. Ýmsir dagskrárliðir eru í boði sem fastagestir geta stólað á, ár eftir ár, en einnig er bryddað upp á nýjungum eins og rekstraraðilunum einum er lagið. Í ár töfrar Bæjarbíó fram tónlistarhátíðina Jólahjarta Hafnarfjarðar í allri sinni dýrð sem er með svipuðu sniði og aðrar tónlistarhátíðir tengdar Bæjarbíói – í upphituðu fagurlega skreyttu risatjaldi í bakgarðinum. Þar verða trúbadorar, skífuþeytar og „singalong“ sem kæta mannskapinn og hægt að kaupa hina margrómuðu humarsúpu frá Tilverunni. Frítt er inn á svæðið.
Bæjarbíó og Mathiesen stofan skipa mikilvægan sess í hjörtum bæjarbúa og vina Hafnarfjarðar
Opið í hádeginu og á kvöldin í desember
Jólahjartað verður opið alla aðventuna og er opið bæði í hádeginu og á kvöldin frá 9. – 30. desember. Notaleg jólatónlist er í tjaldinu og óvænt atriði. Tilvalið fyrir m.a. fyrirtæki, pör, vinahópa, saumaklúbba og starfsmannafélög og er hægt að panta borð fyrirfram.
Hafnarfjörður er ríkur af hæfu og vinsælu tónlistarfólki
Hafnfirðingar hafa í áranna rás getað státað sig af afar hæfu og vinsælu tónlistarfólki. Meðal fjölmargra þeirra sem munu stíga á stokk í Bæjarbíói og í Jólahjartanu eru feðginin Björgvin Halldórsson og Svala Björgvinsdóttir í Litlu jólum Björgvins, bræðurnir Jón Jónsson og Friðrik Dór Jónsson verða með ferna tónleika og Guðrún Árný Karlsdóttir stýrir singalong.
Allar nánari upplýsingar má finna á tix.is
Hafnarfjörður's Christmas Magazine 2021
This coverage is part of the content in Hafnarfjörður's Christmas Magazine 2021. The Christmas issue has the sole and true purpose of introducing the Christmas town of Hafnarfjörður to all interested parties, to visitors and passers-by, and to shine a light on the warmth and diversity that lies with the people and businesses of the Christmas town of Hafnarfjörður. The 2021 Christmas magazine features, among other things, coverage of alternative entertainment, fitness traditions, the unique community spirit of the residents, the House of Opportunities in Hellisgerði, family-run businesses, the Northern Lights, magically-themed cafés, tempting recipes, the importance of enjoying oneself and relaxing, The Christmas Heart and the Heartwarming, which opens in December, community projects for the good of the community, and last but not least, the Christmas Village, which opened on the first weekend of Advent.