Ásvallalaug verður lokuð laugardaginn 2. apríl og sunnudaginn 3. apríl vegna Actavismóts í sundi. Opið er í Sundhöll Hafnarfjarðar og Suðurbæjarlaug.
Ásvallalaug verður lokuð laugardaginn 2. apríl og sunnudaginn 3. apríl til kl. 14 vegna Actavismóts í sundi. Sundlaugin verður opin fyrir almenning frá kl. 14 – 17 á sunnudeginum en alveg lokuð á laugardeginum. Actavismótið er opið sundmót fyrir öll félög og sundmenn þar sem keppt er í aldursflokkum og opnum flokkum.
Við hvetjum íbúa og gesti til að skella sér í sund í Suðurbæjarlaugina um helgina. Þar verður að sjálfsögðu opið alla helgina!