Lýðheilsugöngur í september – VERTU MEÐ!
Ferðafélags Íslands (FÍ) í samstarfi við Heilsubæinn Hafnarfjörð bjóða upp á lýðheilsugöngur alla miðvikudaga í september. Um er að ræða fjölskylduvænar göngur sem taka u.þ.b. 60-90 mínútur og hafa þann megintilgang að hvetja fólk til útivistar og hreyfingar í góðum félagsskap og efla þar með heilsu sína og lífsgæði.

VERTU MEÐ!
Lýðheilsugöngur í Hafnarfirði í september verða eftirfarandi:
- Miðvikudagurinn 4. september kl. 18: Matarganga um miðbæinn. Tryggvi Rafnsson leiðir gesti
milli nokkurra vel valinna veitingastaða þar sem eigendur munu kynna starfsemi
sína og bjóða jafnvel uppá smakk. Gengið verður frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 18. - Miðvikudagurinn 11. september kl. 18: Fjölskylduganga um Hvaleyrarvatn. Íþróttaálfurinn mun leiða fjölskyldugöngu um
Hvaleyravatn. Skemmtilegar æfingar og þrautir fyrir yngstu göngugarpana. Gengið
verður frá bílastæðinu norðan við vatnið kl.18. - Miðvikudagurinn 18. september kl. 18: Söguganga um Krýsuvík. Jónatan Garðarsson leiðir göngu upp Arnarfellið í
Krýsuvík. Gengið verður frá Krýsuvíkurkirkju kl.18. - Miðvikudagurinn 25. september kl. 20: Ævintýraganga fyrir ungmenni. Ævintýraganga fyrir ungmenni í nærumhverfi félagsmiðstöðva. Gengið
verður frá öllum félagsmiðstöðvum grunnskóla Hafnarfjarðar og frá
ungmennahúsinu Hamrinum kl. 20.
Vonandi reima sem flestir á sig gönguskóna með okkur á miðvikudögum í september, fara út í náttúruna og njóta fallega landsins okkar.
LIFUM OG NJÓTUM!