Markaðsstofa Hafnarfjarðar
Þriðjudaginn 17.mars kl. 17.15 verður haldinn umræðufundur í Hafnarborg þar sem rætt verður um starfssemi Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem stofnuð verður á næstu vikum.
Þriðjudaginn 17.mars kl. 17.15 verður haldinn umræðufundur í Hafnarborg þar sem rætt verður um starfssemi Markaðsstofu Hafnarfjarðar sem stofnuð verður á næstu vikum.
Markaðsstofan mun leggja áherslu á að gera Hafnarfjörð að öflugum valkosti fyrir fólk og fyrirtæki til búsetu, atvinnu og afþreyingar.
Fundarstjóri – Helgi Ásgeir Harðarson
Dagskrá fundarins;
Inngangur – Pétur Óskarsson
Markaðsstofa Kópavogs -Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir
Icelandair – nýtt fyrirtæki í bænum
Hress – rótgróið fyrirtæki í bænum
Opnar umræður – stofnun undirbúningshóps fyrir næstu skref
Allir áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í að móta Markaðsstofu Hafnarfjarðar.