Markmiðið að auka menntunarstig starfsmanna í leikskólum
Í Hafnarfirði er hlutfall leikskólakennara í dag um 31% og aðrir með uppeldismenntun um 17%. Alls er hlutfall fagfólks því um 48% í leikskólum Hafnarfjarðar.
Fræðsluráð hefur samþykkt að fara í aðgerðir til að auka menntunarstig starfsmanna í leikskólum Hafnarfjarðarbæjar.
Í Hafnarfirði er hlutfall leikskólakennara í dag um 31% og aðrir með uppeldismenntun um 17%. Alls er hlutfall fagfólks því um 48% í leikskólum Hafnarfjarðar.
Þótt þetta sé í hærri kantinum ef miðað er við önnur sveitarfélög vantar talsvert upp á að ákvæði laganna um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla sé náð. En þar segir að lágmarki 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskólakennara.
Til að nálgast þetta lágmark verður boðið upp á eftirfarandi leiðir:
Háskólamenntuðu starfsfólki í leikskólum sem ekki hefur leikskólakennaramenntun verður gefið tækifæri til að ná sér í þau réttindi.
Ófaglærðu starfsfólki gefinn kostur á sækja nám í leikskólakennarafræðum.
Leikskólakennari geti aflað sér meistaraprófs í menntunarfræðum með ýmsum áherslum.
Þessu til viðbótar verða haldin markviss námskeið sem miða að því að efla leiðtogahæfni og styðja við stjórnendur leikskólanna.
Markmið Hafnarfjarðarbæjar er að á næstu árum verði komnar aðstæður til að geta boðið yngri börnum leikskóladvöl og er þá grundvallaratriði að kennarar séu til staðar í leikskólunum.
Með samþykkt fræðsluráðs er verið að taka mikilvægt skref til að hækka hlutfall fagmenntaðra og fjölga kennurum.