Menningardagar í Áslandsskóla
Dagana 3. – 6. apríl eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Söngleikir og tónlist er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið verður með söngleiki & tónlist á fjölbreyttan hátt. Opið hús fyrir alla frá kl. 12-17 fimmtudaginn 6. apríl.
Dagana 3. – 6. apríl eru menningardagar
í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Söngleikir
og tónlist
er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið
verður með söngleiki & tónlist á
fjölbreyttan hátt.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag stendur
skóladagur yfir frá 8.10 – 13.10.
Fimmtudaginn 6. apríl er opið hús
í Áslandsskóla frá kl. 12:00 – 17:00 en þá er sýning
á afrakstri menningardaganna og á vinnu nemenda í vetur. Uppákomur verða á sal skólans. Setning og fyrstu sýningar verða á slaginu 12.00. Einnig verður hið sívinsæla kaffihús á vegum
10. bekkja á efri hæðinni.
Allir velkomnir!